Collector
Vill sjá karlmenn sem ljósmæður á Íslandi | Collector
Vill sjá karlmenn sem ljósmæður á Íslandi
Fréttastofa RÚV

Vill sjá karlmenn sem ljósmæður á Íslandi

Enginn karlmaður starfar hér á landi sem ljósmóðir en formaður Ljósmæðrafélagsins segist endilega vilja sjá karlmenn í starfinu. Karlmenn víða erlendis starfi sem ljósmæður. Um 130 ljósmæður af öllu landinu sátu nýlega ráðstefnu á Selfossi á sérstökum ljósmæðradegi, þar sem fjölmörg erindi voru haldin. Mikil á ánægja var með daginn en ljósmóðurfræði hefur verið kennd við Háskóla Íslands í um 30 ár. En staðreyndin er sú að konur sækja bara í námið, engir karlmenn. Hvað segir formaður Ljósmæðrafélagsins við því? „Það vantar ljósmæður á Íslandi og í heiminum öllum vantar milljón ljósmæður,” segir Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands. En hafa karlmenn einhvern tímann lært að vera ljósmæður? „Ekki hérna á Íslandi, nei, ekki í formlegu námi en það voru karlmenn sem lærðu af yfirsetukonum og tóku við keflinu ef þær veiktust en það er ekki karlmaður hér á Íslandi, sem er formlega ljósmóðir en í Bretlandi, Nýja-Sjálandi og Ástralíu, þar er mjög mikið af karlmönnum og þar er bara alveg jafnt á við konu,” segir Unnur Berglind. Unnur Berglind segir ekkert athugavert við að karlmenn starfi sem ljóðmæður, það sé bara frábært. „Það væri bara gott að fá fleiri karlmenn inn í stéttina”, segir hún. Viltu fá íslenska karlmenn sem ljósmæður? „Já, af hverju ekki, íslenska og erlenda,” segir Unnur Berglind. Formaður Ljósmæðrafélagsins segist endilega vilja sjá karlmenn í starfinu, en enginn karlmaður er starfandi innan fagsins hér á landi.

Go to News Site