Collector
„Ástríða og endalaus ævintýri“ | Collector
„Ástríða og endalaus ævintýri“
Fréttastofa RÚV

„Ástríða og endalaus ævintýri“

Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, myndlistarkona og búninga- og leikmyndahönnuður, var sæmd heiðursverðlaunum Sviðslistasambands Íslands á Grímuverðlaununum í kvöld, fyrir framúrskarandi og ómetanlegt framlag sitt til íslenskra sviðslista. Þórunn uppskar mikið lófatak og fögnuð er hún gekk upp á svið Þjóðleikhússins til að veita verðlaununum viðtöku. „Fyrst og fremst er þetta búinn að vera dásamlegur tími, ástríða og endalaus ævintýri,“ sagði hún og þakkaði kærlega fyrir sig. „Ég er náttúrulega svo ótrúlega lánsöm, ég er orðin svo djöfull gömul. Ég er búin að sjá svo mikið og gera svo mikið,“ sagði Þórunn. Hún rifjaði upp búsetu sína í Englandi í ræðu sinni, talaði um listasöfnin þar sem hún gat skoðað listaverk, gamla búninga og skart. „Svoleiðis lærði ég á períódurnar,“ sagði hún og bætti við að hún væri stöðugt að læra. Einstök listræn sýn sem markar djúp spor Þórunn Elísabet fæddist á Siglufirði árið 1952 og var ung þegar hún hóf að skapa. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Á yfir 40 ára ferli hefur Þórunn sinnt fjölmörgum verkefnum og hannað búninga fyrir Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið, Íslensku óperuna og sjálfstæða leikhópa. Þá hefur hún einnig hannað búninga og leikmynd fyrir skjáinn, þar má nefna búningahönnun fyrir kvikmyndirnar 101 Reykjavík, Hafið og Íkingút. Hún skapaði einnig listræna áferð í sjónvarpsverkunum Ófærð og Eiðnum. Þórunn hefur markað djúp spor í íslensku leikhúsi, óperu og kvikmyndum með sinni einstöku listrænu sýn. Hún hefur verið tilnefnd til sex Grímuverðlauna fyrir búningahönnun og hlotið þrjú.

Go to News Site