Fréttastofa RÚV
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn framlengdu í hádeginu meirihlutasamstarf sitt í bæjarstjórn Múlaþings. Málefnasamningur þeirra var undirritaður í Sláturhúsinu á Egilsstöðum í hádeginu. Jónína Brynjólfsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins, segir að stærsta hagsmunamálið sé að berjast fyrir samgöngubótum. Í málefnasamningnum er sér kafli um hagsmunabaráttu sveitarfélagsins út á við. „Samstarfið gekk rosalega vel á síðasta kjörtímabili og meirihlutinn bætir við sig. Sjálfstæðismenn bæta við sig manni. Það var auðséð að við myndum hefja fyrsta samtal. Það gekk ljómandi vel.“ Múlaþing – Lokatölur Lokatölur frá 17. maí 2026 kl. 02:32 Nánari greiningu má finna á ruv.is/kosningar . &>"'
Go to News Site