Fréttastofa RÚV
Kenneth Iwamasa, persónulegur aðstoðarmaður bandaríska leikarans Matthew Perry, hefur verið dæmdur í 41 mánaðar fangelsi fyrir aðild sína að dauða hans. Iwamasa er sá fimmti sem er ákærður í málinu. Perry fannst látinn í heitum potti á heimili sínu í Los Angeles í október 2023. Krufning leiddi í ljós að hann hafi látist af völdum ketamínneyslu, drukknunar og kransæðastíflu. Iwamasa sprautaði Perry með ketamíni og útvegaði honum, í samvinnu við tvo lækna, meira en 50 þúsund dollara virði af lyfinu vikurnar fyrir andlát hans. Iwamasa hafði enga læknisfræðilega menntun. Í ágúst 2024 játaði hann sök í einum ákærulið er varðaði samsæri um dreifingu á ketamíni sem leiddi til dauða Perry. Átti hann þá yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi auk þess að vera dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið eftirlit og gert að greiða tíu þúsund dollara í sekt. Í réttarsal í Los Angeles í dag steig Iwamasa í vitnastúkuna, sneri sér að fjölskyldu leikarans og sagði: „Ég bið ykkur öll innilegrar afsökunar. Ég sé svo eftir því að hafa framið þessi ólöglegu athæfi og mun sjá eftir því það sem eftir er. Ég tek þetta með mér í gröfina.“
Go to News Site