Fréttastofa RÚV
Crystal Palace og Rayo Vallecano léku til úrslita í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta í kvöld. Leikið var í Leipzig í Þýskalandi. Crystal Palace varð enskur bikarmeistari í fyrsta sinn í fyrra. Liðið endaði í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar þetta tímabilið. Rayo Vallecano lauk keppni í 8. sæti í efstu deild á Spáni. Fyrri hálfleikur var markalaus en Jean-Philippe Mateta kom enska liðinu yfir á 51. mínútu leiksins. Þótt Crystal Palace hafi fengið fjölda færa eftir það tókst liðinu hins vegar ekki að skora. Lokatölur urðu því 1-0 og Crystal Palace fagnar sigri í Sambandsdeildinni þetta árið. Þetta er jafnframt fyrsti Evróputitill Crystal Palace. Kveður með stæl Leikurinn var sá síðasti undir stjórn Olivers Glasner en hann segir nú skilið við liðið. Hann tók við stjórn Crystal Palace árið 2024 og kveður tveimur titlum ríkari. Enda allir titlarnir á Englandi? Nú hafa ensk lið unnið bæði Sambandsdeildina og Evrópudeildina því Aston Villa hafði sigurinn á dögunum. Enn geta ensk lið bætt við því Arsenal mætir PSG í úrslitum Meistaradeildarinnar um komandi helgi.
Go to News Site