Fréttastofa RÚV
Enn er ósamið á Alþingi um hvernig ljúka eigi umræðunni um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra varðandi framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Boðað hefur verið til þingfundar í fyrramálið.RÚV / Ragnar Visage Þingfundi lauk klukkan tuttugu mínútur fyrir eitt í nótt eftir að þingmenn Miðflokksins ræddu sín á milli um þingsályktunartillöguna og aðildarumsóknina. Sú breyting var gerð á dagskrá þingsins eftir fund í forsætisnefnd í kvöld að þingfundur hefst klukkan hálf ellefu í fyrramálið. Dagurinn var ætlaður til nefndastarfa samkvæmt starfsáætlun, sem færast yfir á laugardag.
Go to News Site