Collector
Nýskipaður leiðtogi hernaðararms Hamas drepinn í loftárás Ísraelshers | Collector
Nýskipaður leiðtogi hernaðararms Hamas drepinn í loftárás Ísraelshers
Fréttastofa RÚV

Nýskipaður leiðtogi hernaðararms Hamas drepinn í loftárás Ísraelshers

Ísraelsher segist hafa vegið Mohammed Odeh, nýjan leiðtoga hernaðararms Hamas, á þriðjudag. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu hersins og innri öryggisþjónustunnar Shin Bet. Ísraelsmenn hafa skipulega lagt til atlögu að leiðtogum Al-Qassam-sveitanna og Odeh er sá fjórði sem Ísraelsmenn segjast hafa fellt frá upphafi stríðsins á Gaza. Varnarmálaráðherrann Israel Katz sagði herinn hafa sent Odeh til fundar við samverkamenn sína í iðrum vítis. Ezzedine al-Haddad , forveri Odehs, var drepinn ásamt fjölskyldu sinni 15. maí. Hann var talinn lykilmaður í hryðjuverkaárásinni á Ísrael 7. október 2023. Í yfirlýsingu hernaðararmsins segir að eiginkona Odehs og þrjú uppkomin börn hafi einnig farist píslarvættisdauða í árás Ísraelshers . Þau voru borin til grafar í Gazaborg í gær. Ísrael ræður enn yfir 60 prósentum Gaza-strandarinnar og öllum innkomuleiðum þangað. Ásakanir um brot á vopnahlénu hafa gengið á víxl milli Hamas og Ísraelshers síðan það tók gildi í október. Síðan þá hefur herinn drepið minnst 900 Palestínumenn samkvæmt upplýsingum heilbrigðisyfirvalda á Gaza.

Go to News Site