Fréttastofa RÚV
Verðbólga var 5,1 prósent í maí og stendur því sem næst í stað frá því í apríl, þá var hún 5,2 prósent. Þetta er fyrsta verðbólgumælingin eftir að virðisaukaskattur á eldsneyti var lækkaður 1. maí. Það var gert til að halda aftur af hækkun eldsneytisverðs vegna stríðsins við Persaflóa og til að sporna gegn verðbólgu. Í kjarasamningum frá 2024 er endurskoðunarákvæði. Ef verðbólga verður ekki komin undir 4,7 prósent er hægt að segja upp kjarasamningum. Sú uppsögn tæki gildi 31. október. Fyrr í þessum mánuði ákváðu Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, að hefja samtal með það að markmiði að forsendur kjarasamninga haldi. Stýrihópur og undirhópar voru skipaðir til að vinna að því markmiði. Fréttin verður uppfærð.
Go to News Site