Fréttastofa RÚV
29 stöðugildi verða lögð niður hjá Bláa lóninu og 55 starfsmenn verða fluttir milli sviða í skipulagsbreytingum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bláa lóninu. Þar segir að einnig verði ráðið í ný störf sem ekki voru til innan fyrirtækisins. Starfsfólki var tilkynnt um skipulagsbreytingar í höfuðstöðvum fyrirtækisins í morgun. „Markmið breytinganna eru fyrst og fremst að skerpa á hlutverki móðurfélagsins í þjónustu sinni við dótturfélögin, við viljum gera skilin á milli kjarnastarfsemi og stoðstarfsemi skýrari, auka áherslu á sölu og markaðssetningu með tækni, tryggja örugga framkvæmd þróunar- og fjárfestingaverkefna en á sama tíma sækja nauðsynlega hæfni til þess að ná árangri í framtíðinni,“ er haft eftir Sigríði Margréti Oddsdóttur, forstjóra Bláa Lónsins, í tilkynningu. „Í dag sjáum við á eftir góðu samstarfsfólki sem hefur staðið sig mjög vel og við óskum alls hins besta,“ segir hún enn fremur. Heildarfjöldi stöðugilda hjá samstæðunni lækkar úr 807 í 778 við breytingarnar. Uppsagnirnar teljast ekki til hópuppsagnar því þá þarf að minnsta kosti 30 starfsmönnum að vera sagt upp í fyrirtæki þar sem venjulega starfa 300 eða fleiri.
Go to News Site