Collector
Ari ætlar að íhuga vel boð Hildar | Collector
Ari ætlar að íhuga vel boð Hildar
Fréttastofa RÚV

Ari ætlar að íhuga vel boð Hildar

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, hefur ekki ákveðið hvort hann þiggur boð Hildar Björnsdóttur, verðandi borgarstjóra, um formennsku í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Hildur tilkynnti í gær, þegar nýr meirihluti í borgarstjórn var kynntur, að hún hefði boðið Ara stjórnarformennskuna. Gylfi Magnússon, núverandi stjórnarformaður, var kosinn þegar ný borgarstjórn tók við 2022. Í skriflegu svari til fréttastofu segist Ari vera að íhuga málið, það þurfi að skoða vel og hann ætli að gefa sér tíma til þess áður en hann tekur ákvörðun. Ari Edwald á kjörstað í sveitarstjórnarkosningunum 2026.RÚV / Ragnar Visage

Go to News Site