Fréttastofa RÚV
Lögreglan á Vesturlandi veitti ökumanni eftirför af Snæfellsnesi og tókst loks að stöðva för hans í Skorradal skömmu fyrir hádegi. Stöðva átti ökumanninn fyrir of hraðan akstur, en hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, segir að naglamottum hafi verið beitt en ökumaðurinn komist framhjá þeim þar sem hann var á sérútbúnum bíl. Fjöldi lögreglubíla auk sjúkrabíla og þyrlau Landhelgisgæslunnar voru kölluð út. Ásmundur segir að ökuhraði í eftirförinni hafi ekki verið eins mikill og oft sé í svona atvikum. Ökumaðurinn var að lokum stöðvaður í Skorradal og engum varð meint af.
Go to News Site