Collector
Breið samstaða í nýrri bæjarstjórn Grindavíkur | Collector
Breið samstaða í nýrri bæjarstjórn Grindavíkur
Fréttastofa RÚV

Breið samstaða í nýrri bæjarstjórn Grindavíkur

Oddvitar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í Grindavík, allra þeirra flokka sem buðu fram í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningunum í vor, hyggja á samstarf á komandi kjörtímabili. Fram kemur í tilkynningu Grindavíkurbæjar að flokkarnir þrír hafi að undanförnu unnið saman að gerð samfélagssáttmála sem ætlað sé að vinna að krefjandi og spennandi verkefnum sem fram undan séu í sveitarfélaginu. Stefnt er að því að kynna samstarfssamninginn og áherslur nýrrar bæjarstjórnar á næstu dögum en fyrsti fundur bæjarstjórnarinnar verður haldinn 2. júní. Grindavíkurbær

Go to News Site