Collector
Emil Barja tekur við Stjörnunni | Collector
Emil Barja tekur við Stjörnunni
Fréttastofa RÚV

Emil Barja tekur við Stjörnunni

Emil Barja tekur við sem aðalþjálfari karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta. Emil þjálfaði kvennalið Hauka sem urðu Íslandsmeistarar árið 2024 undir hans stjórn. Baldur Þór Ragnarsson var þjálfari Stjörnunnar en sagði starfi sínu lausu eftir tímabilið. Stjarnan varð Íslandsmeistari í fyrra en datt út í undanúrslitum í ár. Samningur Emils er til tveggja ára. Hann segist spenntur fyrir verkefninu. „Ég er spenntur að koma til Stjörnunnar og taka við þessu nýja starfi. Stjarnan hefur byggt upp öflugt starf og leikmannahópurinn er sterkur og verður gaman að verða þátttakandi í framhaldinu.“ Stjarnan

Go to News Site