Collector
Þrír drepnir í drónaárás á Donetsk — dróni skall á húsi í Rúmeníu | Collector
Þrír drepnir í drónaárás á Donetsk — dróni skall á húsi í Rúmeníu
Fréttastofa RÚV

Þrír drepnir í drónaárás á Donetsk — dróni skall á húsi í Rúmeníu

Þrír voru drepnir í drónaárás Úkraínuhers á Donetsk-hérað sem hernumið er af Rússum og nefnt Alþýðulýðveldið Donetsk. Hús stendur í ljósum logum eftir árás Rússlandshers á borgina Kramatorsk í Donetsk 25. maí.EPA / Maria Senovilla Leiðtoginn Denis Pushilin, Rússi sem ráðið hefur þar ríkjum síðan 2018, tilkynnti þetta í færslu á samskiptamiðlinum Telegram og sagði minnst fimm til viðbótar hafa særst, einn mjög alvarlega. Úkraínskum drónum hefur einnig verið beint að orkuinnviðum í rússneska héraðinu Volgogrod. Íbúðahús skemmdist en engin tíðindi hafa borist af manntjóni. Tveir særðust lítillega þegar dróni skall á íbúðahúsi í rúmensku hafnarborginni Galati í nótt. Borgin er nærri landamærunum að Úkraínu. Þarlend útvarpsstöð greindi frá atvikinu.

Go to News Site