Collector
Hálka og snjóþekja á vegum | Collector
Hálka og snjóþekja á vegum
Fréttastofa RÚV

Hálka og snjóþekja á vegum

Hálka og snjóþekja er á vegum á norðaustan- og austanverðu landinu. Flughált er í Langadal á Möðrudalsöræfum og hálka á Vopnafjarðarheiði, Sandvíkurheiði, Brekknaheiði og Raufarhafnarvegi. Snjóþekja er á Hófaskarði og Háreksstaðaleið. Hálkublettir eru víða á Norðausturlandi. Víða er hált á Austurlandi og á Vatnsskarði eystra og Jökuldal er snjóþekja. Krapi er á Heiðarenda, Öxi og Breiðdalsheiði. Snjóþekja er víða á fjallvegum.RÚV / Ágúst Ólafsson

Go to News Site