Fréttastofa RÚV
Landsréttur staðfesti í gær sex mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir karlmanni. Hann var sakfelldur fyrir að birta kynferðislegar myndir af barnsmóður sinni og fyrrverandi sambýliskonu sinni. Myndirnar af konunni birti hann á vefsíðu og Facebook-síðu sinni. Þegar maðurinn birti fyrstu myndina hótaði hann líka að birta nektarmynd af konunni á vefsíðunni. Maðurinn var líka dæmdur til að greiða konunni 800 þúsund krónur í miskabætur. Landsréttur.RÚV / Ragnar Visage
Go to News Site