Fréttastofa RÚV
„Allt sem þú fékkst hjá kaþólsku kirkjunni fannst mér gefa mér svo mikið. Mér fannst ég einhvern veginn vera kominn heim,“ segir Hreinn Líndal óperusöngvari sem er einn af átta íslenskum Mölturiddurum. Möltureglan, elsta riddarareglan í heimi, er frábrugðin flestum öðrum kaþólskum trúarreglum að því leyti að hún er alþjóðlegur lögaðili, gefur út sín eigin vegabréf, frímerki, númerplötur og mynt. Hún er með sendiráð í 115 ríkjum, sendiherra hjá Evrópusambandinu og áheyrnarfulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum. Hreinn er óperusöngvari og rak um tíma tískuhúsið H. Líndal og sá um að klæða Vigdísi Finnbogadóttur fyrstu ár hennar á forsetastóli í samstarfi við tískurisa á borð við Valentino. Hann var mikill vinur Ronalds Regan fyrrum Bandaríkjaforseta og hefur alla tíð sinnt mannúðarstörfum af miklum krafti. Anna Gyða Sigurgísladóttir fjallar um Mölturegluna og ræðir við Hrein í þættinum Meining á Rás 1. Kross til að bera af kærleika og fórnfýsi Reglan var stofnuð 1048 sem spítalaregla en þróaðist yfir í hernaðarreglu sem átti að vernda kristið fólk og trú. Þó að hún einblíni ekki lengur á hernaðarhliðina þá er hlutverk riddaranna enn að „vernda hina kaþólsku trú fyrir óvinum hennar“ eins og Hreinn orðar það. Hann minnist þess sérstaklega að þegar hann var vígður inn í regluna árið 1993, eftir tveggja ára undirbúning, sagði presturinn orðuna, Möltukrossinn, ekki vera til skreytingar. „Þið eigið ekki að punta ykkur með honum. Þetta er kross sem þið þurfið að bera með kærleika og fórnfýsi.“ Á Íslandi eru átta Mölturiddarar, sjö karlmenn og ein kona sem kölluð er dama. Möltureglan er einstakt fyrirbæri í alþjóðarétti og telst fullvalda samkvæmt alþjóðalögum þótt hún sé ekki hefðbundið ríki. Hannaði kjól Vigdísar sjálfur Hreinn er 89 ára og samhliða athyglisverðum ferli hefur hann sinnt starfi Mölturiddara í rúma þrjá áratugi. Hann er sá Íslendingur sem hefur verið hvað lengst í reglunni. Hreinn rak um tíma tískuhúsið H. Líndal á Skólavörðustíg og klæddi meðal annars Vigdísi Finnbogadóttur fyrstu ár hennar í embætti forseta Íslands. Hann var þá í samstarfi við tískurisa á borð við Valentino, Hermés og Cerrutti 1881 við að hanna og sauma fatnað á Vigdísi. „Einn kjólinn hannaði ég meira að segja sjálfur,“ rifjar Hreinn upp. „Það var ekki mikið tekið hjá Valentino að þeir myndu sauma kjól sem væri hannaður af öðrum en þeim fannst þetta frábært og voru líka svo ánægðir með að vera að klæða þennan fyrsta kvenforseta. Það tókst held ég bara vel, hún var mjög þakklát og ánægð.“ Kjólnum klæddist Vigdís í opinberri heimsókn til Svíþjóðar og einnig þegar hún fór á fund Danadrottningar eitt sinn. „Mér fannst hún vera fallegri klædd heldur en Danadrottning, þó ég segi sjálfur frá.“ Ronald Regan skemmtilegur og klár maður Anna Gyða heimsótti Hrein og á heimili hans er stór innrömmuð mynd af fyrrum forsetahjónum Bandaríkjanna, Ronald og Nancy Regan. Undir myndinni er áritað persónulegt bréf til Hreins þar sem Regan þakkar honum fyrir örlætið. „Við vorum góðir vinir. Ég bjó í Bandaríkjunum í 32 ár og ég á svo margt frá honum,“ segir Hreinn og sýnir Önnu Gyðu bók sem Regan gaf öllum vinum sínum þegar hann yfirgaf Hvíta húsið. Hreinn vann mikið fyrir Repúblikanaflokkinn sem óperusöngvari og kom fram á hinum ýmsu viðburðum og fjáröflunum. Hann segist ekki vita almennilega hvernig íslenskur strákur hafi komið sér í þá stöðu en fyrst hafi hann kynnst Rudy Boschwitz, sem var þingmaður öldungadeildar. „Svo var ég beðinn um að syngja við eitthvert tækifæri og síðan jókst það bara. Ég var í þessu í nokkur ár.“ Þegar George Bush var settur í embætti forseta Bandaríkjanna var Hreini boðið að vera viðstaddur athöfnina en hann var að syngja og gat ekki farið. „Ég á enn þá boðskortið.“ Hreinn segir Ronald Regan hafa verið frábæran mann. „Hann var skemmtilegur og klár. Hún líka, hún var voða mikið með honum í öllu en hann var sérstakur maður og ég ber mikla virðingu fyrir honum.“ Er bara hann sjálfur hvar sem hann er Hreinn hefur helgað líf sitt mannúðarstörfum. Hann vann fyrir Sameinuðu þjóðirnar í 15 ár og sinnti sjálfboðastarfi við sjúkrahús í New York í 17 ár. „Síðan er ég kominn aftur hingað til lands og líður mjög vel.“ Hann fluttist aftur til landsins árið 2014 en hafði þá búið í Bandaríkjunum í 32 ár. Þar á undan bjó hann á Ítalíu og segist enn vera svolítið ítalskur í sér. „Ég bjó þar í ellefu ár. Systkini mín sögðu: Hann fór en kom aldrei aftur, sami Íslendingurinn. Samt er ég bara ég, ég aðlagast alltaf hvar sem ég er.“ Fjölskyldunni fannst hann vera að fjarlægjast þau Trúin kom snemma til Hreins sem var farinn að syngja í Landakotskirkju 16 ára og heillaðist af kaþólskri trú. „Ég vildi jafnvel helga mig henni.“ Þegar hann bjó í Róm, þangað sem hann fluttist árið 1960, kynntist hann trúnni enn betur. „Fjölskyldan mín var svolítið á móti því, þannig lagað. Þeim fannst ég vera að fjarlægjast þau. En svo jókst þetta og ég tók kaþólska trú 1972 á Ítalíu. Ég vissi alveg hvað ég var að gera og þetta var hluti af mér, að mér fannst. Ég sé ekki eftir því.“ Honum fannst trúin gefa sér það sem hann hafði leitað að. Hreinn kynntist Möltureglunni þegar hann bjó á Ítalíu og átti þar nokkra vini sem voru í reglunni. „Ég sá þá hvað það var sérstakt sem þeir voru að gera, það var einstakt. Svo kynntist ég vinum í New York og það tók mig tíma að fara í undirbúning og vera samþykktur til að ganga inn í regluna, eitt eða tvö ár.“ Það er nefnilega ekki hægt að einfaldlega skrá sig í regluna heldur þarf að uppfylla ákveðin skilyrði eins og að vera kaþólskur, hafa gott orðspor innan kirkjunnar og fá meðmæli frá söfnuðinum. Eftir það er ákveðið innliðunarferli þar sem riddarar og dömur taka hlýðniheiti kaþólsku kirkjunnar. Krossinn eiga þau að bera af kærleika og fórnfýsi og Hreinn telur sig hafa gert það. Félagar í reglunni starfa mest í neyðaraðstoð, sjúkraþjónustu, flóttamannahjálp og mannúðarverkefnum. Um það bil 14.000 manns hafa verið formlega teknir inn í Mölturegluna en um 100.000 sjálfboðaliðar, sem og tugir heilbrigðisstarfsmanna, vinna fyrir regluna í mannúðarstörfum um allan heim. Fyrsta stofnunin til að sinna veiku fólki með alnæmi í New York: „Þeir voru að deyja einir“ Hreinn sinnti sjálfboðastarfi við sjúkrahús í New York sem rekið var af kirkjunni. „Það eru 700 sjúklingar þar og mjög veikir margir, en ekkert sem hægt er að lækna heldur aðeins líkna og hjálpa.“ Þegar alnæmissjúkdómurinn var að breiðast út var stofnunin sú eina í New York sem tók á móti fólki. „Ég man að það voru 70 sjúklingar þá sem við hugsuðum um. Þessir sjúklingar áttu mjög erfitt. Margar fjölskyldur voru búnar að yfirgefa þá og þeir voru að deyja einir.“ „Þetta tímabil var mjög erfitt fyrir þessa sjúklinga, það var mjög erfitt,“ segir Hreinn og minnist þess þegar einn þeirra kastaði í hann vatnsglasi því hann þráði svo að hitta fólkið sitt. „Hann dó um ári seinna, þá vorum við bara með honum og héldum utan um hann. Þá átti hann engan að nema okkur.“ Honum hafi þótt mjög vænt um marga þeirra og tók sérstöku ástfóstri við mörg börnin. Hann hafi þurft að passa sig að taka mál þeirra ekki of mikið inn á sig. Á þessum tíma vann Hreinn sem óperusöngvari og ferðaðist mikið um Bandaríkin og kenndi líka. Hann lagði sig þó alltaf allan fram við að gefa sér tíma til að sinna sjálfboðastarfinu nokkrum sinnum í viku og gerði eins mikið og hann gat. „Það var alltaf nóg að gera.“ Alltaf gott að fá inn fólk með hreint hugarfar Hann segir góðan félagsskap að hafa af íslensku Mölturiddurunum en vegna þess að þau séu svo fá geti þau ekki haldið úti jafn öflugu góðgerðastarfi hér á Íslandi eins og hann mátti venjast erlendis. „Það var mikill munur fyrir mig að koma úr 1700 manna hóp í New York og hérna niður í átta. Það var svo mikið sem við gerðum í New York og er enn þann dag í dag gert.“ Hann segir hópinn velja fólk inn í regluna og hvetja áfram þá sem sýna áhuga. „Við lofum að gefa þeim tækifæri og sjá hvernig sá maður mun reynast. Það er alltaf gott að fá gott fólk inn í regluna með gott og hreint hugarfar.“ Óperusöngvarinn Hreinn Líndal hefur verið Mölturiddari í 33 ár. Hann bjó lengi í Bandaríkjunum og kynntist Ronald Regan vel, klæddi Vigdísi Finnbogadóttur fyrstu ár hennar í forsetatíð og hefur sinnt mannúðarstörfum af krafti. Rætt var við Hrein Líndal í Meiningu á Rás 1. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.
Go to News Site