Collector
Ægir Sindri skilyrtur af reynslunni | Collector
Ægir Sindri skilyrtur af reynslunni
Fréttastofa RÚV

Ægir Sindri skilyrtur af reynslunni

„Það er gott að koma þessu út. Ég er búin að vera að hugsa um hana svo lengi og síðustu undanfarna mánuði er ég búinn að vera svolítið á kafi í þessu. Það er bara næs að koma því frá mér og koma þessu út og klára dæmið,“ segir Ægir um tíundu sólóplötu sína, Conditioned by experience. conditioned by experience by Ægir „Áður en ég byrjaði að gera tónlist einn og sjálfur hvarflaði aldrei að mér að ég gæti það, ég var bara trommari og mér fannst ég alltaf vera svolítið of bundinn öðrum til þess að skapa og spila og búa eitthvað til,“ segir Ægir. Vinur hans stakk svo upp á því snemma árið 2019 að hann héldi sólótónleika í Mengi. Þá kviknaði áhuginn og Ætir fór að búa til tónlist. „Fyrst um sinn var ég bara að vinna með trommur og effektapedala, taka upp lúppur og prófa að keyra þessar trommur í gegnum alls konar mismunandi gítareffekta og sjá hvað gerist.“ Það opnaði honum dyr og hann fann mikið frelsi í því að geta skapað sjálfur óháð öðrum. „Eiginlega með hverri plötu opnast nýir heimar og nýir kimar sem mér finnst spennandi að skoða.“ Margar af fyrri plötum Ægis eru leitandi og tilraunakenndar og mótuðust í sköpunarferlinu. „Þessi er alveg ólík öllu hinu. Af því ég var með svona frekar skýra sýn á hvað ég ætlaði að gera löngu áður en ég byrjaði á plötunni.“ Margt á henni er samið í spuna en Ægi finnst hún þó að einhverju leyti vera meira samin en hinar plöturnar. „Hún er frekar formföst þó hún sé óreiðukennd.“ Ægir hefur spilað þungarokk í mörg ár og tekið mikið upp af þeirri tónlist hjá sér og öðrum. „Oft í því eru svona stemningskaflar þar sem er kannski verið að brúa einhver bil eða búa til einhverja uppbyggingu þar sem er pláss sem er fyllt upp í með feedbacki,“ segir hann og bætir við að þeir kaflar hafi alltaf heillað hann. Í mörg ár hugsaði hann því um að búa til verk úr því. „Nema að það kemur aldrei riffið sem er verið að byggja upp að, heldur er feedbackið bara riffið.“ Þar af leiðandi eru engar laglínur á plötunni. „Ég hef verið frekar mikið að vinna með feedback í þessari tónlist sem ég hef verið að gera sjálfur en það hefur pláss og tíma til að þróast hægt en í þessu er þetta meira bara mjög mikið á stuttum tíma og bara fleiri, fleiri lög af feedback hvert ofan á annað og það eru einhverjar svona melódíur sem spretta upp úr því hvernig það hreyfist saman og mér finnst það svo fallegt og spennandi,“ segir Ægir. Upptökuferlið var nokkuð strembið og trommurnar voru teknar upp á aðeins tveimur dögum. Ægir notaði þónokkra mánuði á fyrri hluta síðasta árs í að móta plötuna, í tónlistarrýminu sínu R6013. Þar gerði hann demóupptökur og lék sér með þær. Í haust tók hann upp þrjá trommuparta í Sundlauginni og setti myndband af því á samfélagsmiðla þar sem hann sagðist hafa klónað sig fyrir gerð plötunnar. „Þegar ég var að taka upp demóin þá var feedback-strúktúrinn óljósari en þá var ég svolítið bara að prófa mig áfram með það hvernig sambandið milli gítars og magnara breytist eftir öllum mismunanadi breytum, bæði að færa til og frá og snúa og beygja og stilla,“ segir Ægir sem var að þá að prófa sig áfram með hversu mikið hann gæti stýrt því. Hann tengdi gítarana í gegnum tölvuna og notaði strúktúrinn úr trommugrunninum til þess að geta látið tölvuna sjá um að slökkva á gíturunum og fleira. Ægir hélt útgáfutónleika með pomp og prakt í Iðnó miðvikudaginn 13. maí og kom fram með 15 manna hljómsveit. „Þá þurfti ég að einhvern veginn að þýða eða útskýra fyrir þeim hvernig þetta efni er spilað og það er frekar snúið en það hefur samt gengið mjög vel,“ segir hann. Á tónleikunum var tónlistarfólkið staðsett á víð og dreif um salinn en ekki á sviðinu og tónleikagestir gátu því gengið á milli þeirra og upplifað hvern hluta af tónlistinni. Eftir fyrstu æfingu sveitarinnar var Ægir strax kominn á flug. „Þá fór ég bara eitthvað að hugsa, vá þetta væri geðveik hljómsveit, að vera með allt þetta fólk,“ segir hann þó hann viðurkenni að það yrði líklegast erfitt að halda því gangandi. Fjallað var um plötuna conditioned by experience í Ólátagarði á Rás 2, þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir neðan: Trommarinn og tilraunatónlistarmaðurinn Ægir Sindri fagnaði útgáfu tíundu sólóplötu sinnar með veglegum tónleikum í Iðnó. Ólátagarður á Rás 2 spjallaði við hann um verkið.

Go to News Site