Gunnlaugur Árni Sveinsson og liðsfélagar hans í LSU-háskólanum hefja í dag leik í úrslitum NCAA-háskólagolfsins. Mótið fer fram á Omni La Costa Resort & Spa í Carlsbad í Kaliforníu dagana 29. maí til 3. júní.