Fréttastofa RÚV
Leikið var í Bestu deildunum í fótbolta í kvöld. Einn leikur var hjá konunum og tveir hjá körlunum: Besta deild karla Fram 4-3 Breiðablik FH 0-1 ÍA Besta deild kvenna Valur 0-1 Þróttur Fram ekki tapað í sex leikjum í röð Í Úlfarsárdal byrjuðu Framarar af krafti og þá sér í lagi fyrirliðinn Kennie Chopart. Hann skoraði á þriðju mínútu og aftur á þeirri fimmtu og Fram komið 2-0 yfir. Ívar Örn Árnason minnkaði muninn á 30. mínútu en það sló heimamenn ekki út af laginu því Freyr Sigurðsson sá til þess að staðan var 3-1 í hálfleik með marki á 41. mínútu. Áfram héldu Framarar í seinni hálfleik og á 55. mínútu skoraði Jakob Byström fjórða mark þeirra. Blikar gáfust ekki upp og Kristófer Ingi Kristinsson skoraði í tvígang, fyrst á 60. mínútu og svo úr vítaspyrnu á 69. mínútu. Nær komust Blikar þó ekki, Fram vann 4-3 og er í þriðja sæti með 20 stig, tveimur stigum á eftir KR og fimm frá toppliði Víkings. Blikar eru áfram í fjórða sæti með 15 stig. Ekkert gengur hjá FH Það var markalaust í hálfleik hjá FH og ÍA en Ómar Björn Stefánsson kom gestunum yfir á 76. mínútu eftir frábæra stoðsendingu Guðmundar Þórarinssonar. Það reyndist eina mark leiksins svo ÍA náði í þrjú mikilvæg stig. Liðið lyfti sér upp í sjötta sæti og er þar með 12 stig en Keflavík og KA geta komist upp fyrir liðið vinni þau á sunnudag. FH er hins vegar en í 11. sæti með 2 stig líkt og botnlið ÍBV, fjórum stigum á eftir Þór. Þróttur blandar sér í toppbaráttuna Þá hófst sjöunda umferð í Bestu deild kvenna með leik Vals og Þróttar. Unnur Dóra Bergsdóttir kom Þrótti yfir með marki á 30. mínútu og 0-1 stóð í hálfleik. Á 59. mínútu dró til tíðinda því Þróttarinn Alexia Marin Czerwien fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt. Völsurum tókst hins vegar ekki að nýta sér liðsmuninn, Þróttur vann 0-1 og nálgast þannig toppliðin. Liðið er með 12 stig í fjórða sæti, þremur stigum á eftir toppliði Breiðabliks en öll liðin fyrir ofan Þrótt eiga þó leik til góða. Valur er í sjöunda sæti með sjö stig, þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Go to News Site