Collector
Þorsteinn Jónsson heiðursverðlaunahafi Eddunnar | Collector
Þorsteinn Jónsson heiðursverðlaunahafi Eddunnar
Fréttastofa RÚV

Þorsteinn Jónsson heiðursverðlaunahafi Eddunnar

Þorsteinn Jónsson er heiðursverðlaunahafi Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar 2026. Hann hlaut viðurkenninguna á verðlaunahátíð Eddunnar í kvöld sem haldin var í Gullhömrum með pompi og prakt. Þorsteinn er einn af frumkvöðlum íslenskrar kvikmyndalistar og hluti af þeim hópi fólks sem ýtti íslenskri kvikmyndagerð úr vör á seinni hluta tuttugustu aldar. Viðurkenninguna hlýtur hann fyrir framúrskarandi og áratugalangt framlag sitt til íslenskrar kvikmyndagerðar. Hann er fæddur í Reykjavík 1946 og þegar hann var 22 ára var hann fluttur til Prag að nema kvikmyndagerð við hinn kunna kvikmyndaskóla FAMU. Þá stóð blómaskeið tékkneskra kvikmynda sem hæst og þær vöktu mikla athygli umheimsins. Hann var þó ekki nema rétt nýkominn til Prag þegar Rússar réðust inn í Tékkóslóvakíu og varð vitni að þeim heimssögulega atburði. Í skáldsögu sinni Vordagar í Prag leggur Þorsteinn út af minningum sínum frá þessum tíma og lýsir lævi blöndnu andrúmsloftinu þegar innrás Rússa var yfirvofandi. Hann segist þó hafa ákveðið að láta þetta ekki stöðva sig: „Ég átti mér draum. Kvikmyndir voru minn heimur. Á þessum tíma voru í Evrópu að koma fram kvikmyndir með ferskar hugmyndir, sprottnar upp í menningu ólíkra þjóða. Myndirnar voru persónulegar með sterkum höfundareinkennum og fjölluðu um venjulegt fólk. Markmiðið var að sýna raunveruleikann fremur en að búa til hetjur,“ eins og stendur í bókinni. Eftir námið í Prag og framhaldsnám í Japan gerði Þorsteinn röð heimildamynda fyrir Sjónvarpið ásamt Ólafi Hauki Símonarsyni. Myndirnar vöktu mikla athygli fyrir nýstárlega nálgun. Sú fyrsta þeirra, Fiskur undir steini, varð tilefni mikilla umræðna og deilna í samfélaginu. Hinar myndirnar, Lífsmark, Öskudagur, Gagn og gaman og Daglegt brauð, eru þó einnig afar athyglisverðar. Í þessum verkum er farið inn í kvikuna þar sem tengsl manneskjunnar við umhverfi sitt og samfélag eru skoðuð með aðferð hinnar skapandi og persónulegu heimildarmyndar. Allar götur síðan hefur Þorsteinn haldið uppi merki hinnar skapandi og listrænu heimildarmyndar þar sem skýr höfundarödd er í forgrunni. Hann hefur einnig verið ötull baráttumaður fyrir því að slíkar myndir séu gerðar á Íslandi og ítrekað gagnrýnt það skilningsleysi sem stundum hefur ríkt gagnvart verkum af þessu tagi. Alls eru heimildarmyndir Þorsteins um 30 talsins og fáir Íslendingar sem eiga jafnmargar slíkar að baki. Sterkar húmanískar áherslur, áhugi á félagslegum aðstæðum og hvernig umhverfið mótar manninn eru rauður þráður í heimildarmyndum Þorsteins og má hið sama segja um bíómyndir hans. Sú fyrsta þeirra, þroskasagan Punktur, punktur, komma strik sem byggð er á samnefndri skáldsögu Péturs Gunnarssonar, var frumsýnd 1981 við miklar vinsældir. Þremur árum síðar kom hin rammpólitíska samfélagslýsing, Atómstöðin eftir skáldsögu Halldórs Laxness sem einnig fékk mikla aðsókn en reyndist erfið fæðing og hafði ýmsa eftirmála. Þriðja mynd Þorsteins er Skýjahöllin eftir sögu Guðmundar Ólafssonar sem fjallar um ungan dreng sem þráir að eignast hund og lætur ekkert stöðva sig í að láta drauminn rætast. Þorsteinn hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í kvikmyndageiranum og var meðal annars formaður Félags kvikmyndagerðarmanna um tíma og síðar forstöðumaður Kvikmyndasjóðs Íslands.

Go to News Site