Fréttastofa RÚV
„Af því að maður tekur upp svo mikið af prufum og yfirleitt verður ekkert úr þeim, þá var þetta bara enn önnur prufan og ég bjóst ekkert endilega við að fá þetta hlutverk. Svo bara kom símtalið og allir ánægðir,“ segir Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari um áheyrnarprufuna fyrir hlutverk Fisto í kvikmyndinni Hetjur heimingeimsins (e. Masters of the Universe). Jóhannes Haukur er umkringdur stórstjörnum í þessari nýjustu mynd um He-Man, ofurhetju sem naut fádæma vinsælda hér á landi á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Fjölmörg börn léku sér með He-Man-leikföng, sátu límd yfir sjónvarpinu að horfa á teiknimyndaþætti um ofurhetjuna og svo var gerð vinsæl kvikmynd um kappann árið 1987. Aðalhlutverkið í nýju myndinni er í höndum Nicholas Galitzine. Þar að auki eru Idris Elba, Kristin Wiig, Jared Leto og Alison Brie meðal leikara í myndinni. „Þeir sem þekkja He-Man-heiminn vita að það eru alls konar skepnur í þessu og geimverur,“ útskýrir hann og sumir leikarar því þurft að sitja í förðun í marga klukkutíma. Það hafi til að mynda átt við Hafþór Júlíus Björnsson sem leikur Goat Man í myndinni. „Ég var í svona korter. Fisto er bara venjulegur maður en svo er hann með stálhnefa. Þannig að ég þurfti bara að henda mér í búning, fá smá framan í mig og smeygja mér í hnefann.“ Sótti alheimsfrumsýningu myndarinnar í Los Angeles Í síðustu viku var Jóhannes Haukur viðstaddur alheimsfrumsýningu myndarinnar í Los Angeles ásamt syni sínum. Hann segir þá feðga hafa skemmt sér vel því myndin sé svo skemmtileg. Ekki skemmdi fyrir að hitta aðalleikara myndarinnar frá 1987. „Fyrir framan okkur sat Dolph Lundgren sjálfur. Ég sver það,“ segir leikarinn. „Ég talaði nú bara sænsku við manninn.“ Jóhannes segir Lundgren hafa skilið sig ágætlega þó svo að í raun og veru hafi þetta frekar mátt teljast vera danska með skandínavískum hreim. „Sonur minn vissi vel hver hann var. Hann gengur um á netinu núna hann Dolph Lundgren. Þeir eru svo uppteknir af því strákarnir að vera með góða kjálkalínu. Þegar Dolph lék Ivan Drago í Rocky þá var hann með stórkostlega kjálkalínu, þannig að hann vissi nákvæmlega hver hann var út af því.“ Allt annað að nota móðurmálið en ensku Þó svo að hafa leikið talsvert á erlendri grundu síðustu 12 árin hefur Jóhannes Haukur reglulega leikið í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum hér á landi. Hann leikur til að mynda eitt af aðalhlutverkunum í þáttaröðinni Bless, bless, Blesi sem verður sýnd á RÚV. „Það var svo gaman. Bara það að leika á móðurmálinu, það er allt annað en að leika á ensku, sama hversu góður maður heldur að maður sé í tungumálinu,“ segir Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari. Jóhannes Haukur er umkringdur stjórstjórnum í kvikmyndinni Hetjur heimingeimsins þar sem hann fer með hlutverk Fisto. Myndin verður frumsýnd á Íslandi í næstu viku en leikarinn sótti alheimsfrumsýningu myndarinnar í Los Angeles á dögunum. Rætt var við Jóhannes Hauk Jóhannesson í Morgunútvarpinu á Rás 2. Viðtalið má heyra í fullri lengd hér í spilaranum að ofan.
Go to News Site