Fréttastofa RÚV
Mikið var um dýrðir í Gullhömrum þegar kvikmynda- og sjónvarpsverðlaun Eddunnar voru afhent í 35 flokkum auk heiðursverðlauna og uppgötvunar ársins. Verðlaunaðir eru þeir sem þykja hafa skarað fram úr á sviði skapandi kvikmynda- og sjónvarpslistar. Kvikmyndin Ástin sem eftir er hlaut flestar tilnefningar, 13 talsins. Eldarnir hlutu 12 tilnefningar og The Damned 8. Af leiknu sjónvarpsefni hlutu þættirnir Felix & Klara flestar tilnefningar eða 11 talsins, King and Conqueror hlaut 11 og Vigdís 9. Allar tilnefningar til Edduverðlaunanna í ár má finna hér. Handritshöfundurinn og uppistandarinn Karen Björk Eyfjörð Þorsteinsdóttir stýrði athöfninni.
Go to News Site