Collector
Óeðlilegt að sveitarfélög velji „sinn mann“ í rannsóknir á fósturheimilum | Collector
Óeðlilegt að sveitarfélög velji „sinn mann“ í rannsóknir á fósturheimilum
Fréttastofa RÚV

Óeðlilegt að sveitarfélög velji „sinn mann“ í rannsóknir á fósturheimilum

Lögmaður manna, sem segjast hafa verið beittir ofbeldi á vistheimilinu Bakkakoti í æsku, gagnrýnir að Samband íslenskra sveitarfélaga vilji fá aðkomu að vali fulltrúa í fyrirhugaða rannsóknarnefnd um fósturheimili. Drög að frumvarpi forsætisráðherra um skipan nefndar til að kanna aðbúnað barna sem voru vistuð fyrir atbeina stjórnvalda á einkaheimilum hafa verið birt í Samráðsgátt stjórnvalda. Í frumvarpsdrögunum segir að nefndin skuli vera sjálfstæð og óháð. Ætlunin er að hún verði skipuð þremur nefndarmönnum. Við val á þeim skuli meðal annars horft til þekkingar á sviði sálfræði og barnaverndar. Vilja aðkomu að vali á fulltrúa og málum Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) segir í bókun sem fylgir umsögn sambandsins að henni þyki eðlilegt að SÍS hafi aðkomu að vali fulltrúa í rannsóknarnefnd og ákvörðun um hvaða mál nefndin taki til formlegrar skoðunar. Ástæða þess sé að gert sé ráð fyrir að helmingur kostnaðar við störf nefndarinnar komi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. „Ljóst er að erfitt er að leggja endanlegt mat á kostnað enda ræðst kostnaður á endanum af því hversu mörg heimili verði tekin til sérstakrar skoðunar.“ Áætlaður heildarkostnaður við störf nefndarinnar: Í frumvarpsdrögunum er gert ráð fyrir að nefndin starfi í þrjú ár: þrír nefndarmenn og einn starfsmaður í fullu starfi. Kostnaður við störf nær því til launakostnaðar, húsaleigu, skrifstofukostnaðar og einhverrar aðkeyptrar þjónustu. Við mat á mögulegum kostnaði var litið til kostnaðar af starfi vistheimilisnefndar 2007 til 2011 og áætlað að hann verði um 60 til 70 milljónir á ári. Ef frumvarpið verður samþykkt í júní er gert ráð fyrir því að kostnaður dreifist á eftirfarandi hátt. 2026 – 35 milljónir króna 2027 – 70 milljónir króna 2028 – 70 milljónir króna 2029 – 35 milljónir króna Alls er því gert ráð fyrir að kostnaður við störf nefndarinnar verði 210 milljónir króna. Lagt er til að Samband íslenskra sveitarfélaga og Jöfnunarsjóður sveitarfélaga beri helming þess kostnaðar, eða 105 milljónir yfir þessi þrjú ár. Snorri Steinn Vidal er einn lögmanna Bakkakotsmanna. Hann segir óeðlilegt að sambandið geti valið „sinn mann“ við rannsókn á störfum og framkvæmdum fyrrverandi og núverandi starfsmanna sveitarfélaganna. Hann segir slíkt til þess fallið að valda vantrausti og ótrúverðugleika um störf og niðurstöður nefndarinnar. „Tel ég þessar hugmyndir og kröfur Sambandsins með öllu óásættanlegar og ganga gegn markmiðum nefndarinnar að hafa frjálsar rannsóknarheimildir og vera óháðir í störfum sínum,“ segir í umsögn hans. SÍS vill einnig að frumvarp um sanngirnisbætur, sem forsætisráðherra hefur boðað í haust, verði lagt fram samhliða frumvarpinu um rannsóknarnefndina. Það telur vandséð hvernig hægt verði að meta áhrifin af fyrirhugaðri lagasetningu liggi heildarmyndin ekki fyrir. Óljóst sé hvort gert sé ráð fyrir þátttöku sveitarfélaga í greiðslu sanngirnisbóta. Erfitt sé að áætla kostnað en ljóst sé að um verulegar fjárhæðir sé að ræða og fyrirséð að slíkt myndi hafa veruleg áhrif á fjárhag sveitarfélaga. Brýnt að hefjast handa sem fyrst Snorri Steinn segir að þessum hugmyndum verði að hafna. Brýnt sé að nefndin taki til starfa sem fyrst og að niðurstöður hennar ættu ekki að hafa áhrif á frumvarp um sanngirnisbætur. „Hér er um að ræða tvo ólíka þætti sem eiga ekki slíka tengingu að annar þátturinn geti ekki staðið án hins. Áhyggjur Sambandsins um fjárhagsleg útgjöld mega ekki binda rannsóknarnefndina í störfum sínum. Það færi gegn öllu sem stefnt er að við lagasetningu þessa.“

Go to News Site