Collector
Troðfullur komusalur vegna tafa hjá landamæraeftirliti | Collector
Troðfullur komusalur vegna tafa hjá landamæraeftirliti
Fréttastofa RÚV

Troðfullur komusalur vegna tafa hjá landamæraeftirliti

Nokkur töf varð við landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli á áttunda tímanum í morgun og hafði það áhrif á fjölda fólks sem kom til landsins með morgunflugi. Eftirfarandi færsla var birt í Facebook-hópnum Iceland Travel Tips og í einni athugasemd segist ferðalangur hafa beðið í tvær klukkustundir. Ferðalangur birti þessa færslu í Facebook-hópnum Iceland Travel Tips í morgun.Skjáskot / Facebook Samkvæmt upplýsingum frá Isavia varð töf á vinnslu í landamærakerfi Evrópusambandsins sem verið er að taka í notkun að fullu þessa dagana. Tafir hafa orðið á flugvöllum víðar í Evrópu af sömu ástæðu. Isavia segist gera ráð fyrir því að fólk hafi beðið í ríflega hálftíma en kveðst ekki geta fullyrt um hvort einhverjir hafi beðið lengur.

Go to News Site