Collector
Fékk tíu þúsund krónur og hamborgara fyrir giggið | Collector
Fékk tíu þúsund krónur og hamborgara fyrir giggið
Fréttastofa RÚV

Fékk tíu þúsund krónur og hamborgara fyrir giggið

Í upphafi ársins varð vinsælt á samfélagsmiðlum að bera árin 2016 og 2026 saman, fara aftur í tímann og rifja upp einfaldari tíma þar sem hlutir eins og gervigreind voru víðs fjarri. Miðstöðin ákvað að gera þetta með tónlistarkonunni Bríeti sem var 17 ára gömul árið 2016 og hélt vikulega tónleika á Íslenska barnum. „Ég fékk tíu þúsund kall og hamborgara, og lífið var fullkomið,“ segir Bríet um þennan tíma. „Ég horfði alltaf yfir í Gamla bíó og hugsaði að ég hlakkaði til þegar ég byrjaði að spila þar,“ segir Bríet sem átti sér stóra drauma þarna fyrir tíu árum. Heyrðu meira um ævintýri Bríetar þegar hún var að byrja í spilaranum hér að ofan – hún fór líka í ræturnar og flutti lag fyrir okkur á Íslenska barnum. Miðstöðin er vikulegur þáttur um dægurmenningu á RÚV.

Go to News Site