Collector
70 ára bið Arsenal lengist - PSG vann Meistaradeildina | Collector
70 ára bið Arsenal lengist - PSG vann Meistaradeildina
Fréttastofa RÚV

70 ára bið Arsenal lengist - PSG vann Meistaradeildina

Paris Saint-Germain vann Meistaradeild Evrópu í fótbolta eftir sigur í vítaspyrnukeppni gegn Arsenal. Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og ekkert mark kom í framlengingu. Eberechi Eze og Gabriel reyndust skúrkarnir í vítaspyrnukeppni en þeir hittu hvorugur á markið. PSG er aðeins annað liðið í sögunni til að verja titilinn en liðið vann gegn Inter fyrir ári. Aðeins Real Madrid hefur náð því en spænska liðið vann þrisvar í röð 2016-18 og fimm sinnum í röð 1956-60. /m Svona var vítaspyrnukeppnin Goncalo Ramos skoraði fyrir PSG Gyökeres skoraði fyrir Arsenal Doue skoraði fyrir PSG Eze klúðraði fyrir Arsenal Nuno Mendes klúðraði fyrir PSG. Raya varði Rice skoraði fyrir Arsenal Hakimi skoraði fyrir PSG Martinelli skoraði fyrir Arsenal Beraldo skoraði fyrir PSG Gabriel klúðraði fyrir Arsenal Kai kann á úrslitaleikinn Kai Havertz kom Arsenal yfir á fimmtu mínútu leiksins. Þjóðverjinn slapp í gegn nokkuð tilviljanakennt en hreinsun Marquinhos fór í Trossard. Þetta reyndist betra en nokkur stungusending og Havertz óð inn á teig Frakkanna. Að lokum var hann kominn í nokkuð þrönga stöðu en lúðraði boltanum með vinstri, yfir höfuð Safonov og upp í þaknetið. Havertz skoraði þar með sitt annað mark í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en hann skoraði sigurmark Chelsea árið 2021. Boltinn fór í hönd Bukayo Saka um miðbik fyrri hálfleiks en ekkert víti var dæmt. Lítið var um færi það sem eftir var hálfleiks. PSG bönkuðu Kvaratskhelia og Dembele náðu góðu þríhyrningsspili í seinni hálfleik og Mosquera felldi Georgíumanninn innan teigs. Dembele steig á punktinn og skoraði af öryggi fram hjá Raya. PSG-menn vildu fá annað gult spjald á Mosquera sem var tekinn út af skömmu síðar. Markið kom á 65. mínútu. Kvaratskhelia skaut í stöng Arsenal tólf mínútum fyrir leikslok. PSG bönkuðu í nokkur skipti á dyr Arsenal það sem eftir var venjulegs leiktíma en þó myndaðist ekki mikil hætta. Átti Arsenal að fá víti? Framlengingin var nokkuð þreytuleg og fátt markvert gerðist. Það var þó helst að Arsenal-menn urðu æfir þegar þeir töldu brotið á Noni Madueke. Nuno Mendes virtist fella Madueke innan teigs en dómarinn taldi þetta ekki vera brot. Declan Rice og Mikel Arteta fengu báðir gult fyrir mótmæli. Eze hægði á sér, beið og beið og beið en að lokum sendi hann boltann fram hjá.

Go to News Site