Collector
Fimm handteknir í tengslum við innflutning á töluverðu magni fíkniefna | Collector
Fimm handteknir í tengslum við innflutning á töluverðu magni fíkniefna
Fréttastofa RÚV

Fimm handteknir í tengslum við innflutning á töluverðu magni fíkniefna

Fimm karlar voru í dag úrskurðaðir í tíu daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innflutningi fíkniefna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Handtökurnar voru framkvæmdar í Reykjavík og Hveragerði en málið varðar töluvert magn af sterkum fíkniefnum. Rannsókn málsins hefur verið unnin í samstarfi nokkurra lögregluembætta, auk Tollgæslunnar. Lögreglan vill ekki veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Go to News Site