Collector
Þetta er uppáhalds menningarefni krakka | Collector
Þetta er uppáhalds menningarefni krakka
Fréttastofa RÚV

Þetta er uppáhalds menningarefni krakka

Verðlaunahátíð Sagna fór fram með pompi og prakt í beinni útsendingu á RÚV í Borgarleikhúsinu í kvöld. Barnamenning og sköpunarverk barna voru í aðalhlutverki. Krakkar verðlaunaðir fyrir smásögur, stuttmyndir, leikrit og tónlist Ásamt öðru menningarefni voru krakkar líka verðlaunaðir fyrir sína listsköpun á hátíðinni. Smásögurnar sem voru verðlaunaðar í ár voru Emma, Ísbjörninn og fjólubláa skóflan eftir Valdísi Eir Óskarsdóttur og Nistið eftir Lovísu Hind Þorsteinsdóttur. Smásögurnar verða aðgengilegar á heimasíðu Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu frá og með mánudeginum og verða lesnar upp af leiklistarnemendum frá Akureyri og úr Leiklistarskóla Borgarleikhússins. Þær verða aðgengilegar til hlustunar á spilara RÚV í haust. Stuttmyndirnar Svartholið eftir Móeiði Ronju Davíðsdóttur, Týnda mjólkin eftir Karítas Magnúsdóttur og Gleraugun eftir Þórunni Obbu Gunnarsdóttur og Guðfinnu Kristnýju Helgadóttur hlutu verðlaun og hafa verið birtar á vef KrakkaRÚV. Leikritahandritin Torgið eftir Ásgeir Atla Rúnarsson og Geimverur í heimsókn! eftir Axel Frey Garðarsson, Hilmar Birkisson, Hrein Atla Gunnarsson og Sævar Hrafn Garðarsson voru flutt bæði í Krakkar skrifa í Borgarleikhúsinu og á Barnamenningarhátíð. Lögin sem voru flutt á hátíðinni voru samin af krökkum. Það voru lögin Skólavinur eftir Auði Helgu Aradóttur Einarsdóttur flutt af Klöru Elías, Náttfatapartý eftir Evu Máney Ingibergsdóttur og Söru Lovísu Gunnarsdóttur flutt af Jóhönnu Guðrúnu og Förum út í geim eftir Ómar Elí Fannarsson flutt af VÆB. Þau aðgengileg til hlustunar á streymisveitunni Spotify á miðnætti. Menningarefni sem krakkar vildu verðlauna Góðir Íslendingar var vinsælasti fjölskyldusjónvarpsþátturinn meðal krakka og Krakkaskaupið fékk verðlaun fyrir barna- og unglingaefni ársins. Sjónvarpsstjarna ársins var Inga Sóllilja Arnarsdóttir en hún fékk líka verðlaun fyrir talsetningu ársins. Hún talsetti Lilo í myndinni Lilo og Stitch. Lag ársins var Einhver þarf að segja það með Jóni Jónssyni og Silvíu Nótt sem var lokalagið í áramótaskaupinu 2025 og flytjandi ársins var VÆB. Bókin Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson með myndlýsingum Elínar Elísabetar Einarsdóttur fékk verðlaun fyrir bók ársins og myndlýsingu ársins. Lína langsokkur var valin sýning ársins og barnaleikhópurinn í Galdrakarlinum í Oz var leikflokkur ársins. Stundin okkar heiðruð á sextugsafmælinu Heiðursverðlaunahafi Sagna árið 2026 er Stundin Okkar fyrir ómetanlegt framlag sitt til barnaefnis um árabil. Fyrsti þáttarstjórnandinn, Hinrik Bjarnason, tók við verðlaununum. Þátturinn fagnar 60 ára afmæli í ár.

Go to News Site