Collector
Trump segir „Halló Grænland“ aftur | Collector
Trump segir „Halló Grænland“ aftur
Fréttastofa RÚV

Trump segir „Halló Grænland“ aftur

Donald Trump Bandaríkjaforseti endurbirti í dag á Truth Social gervigreindarmynd sem sýnir ásjónu hans horfa yfir fjallstoppa á lítið, litríkt þorp á Grænlandi. Yfirskriftin er „Halló Grænland“. Þessa sömu mynd birti Trump fyrir viku eftir að Jeff Landry, erindreki hans fyrir Grænland, kom aftur til Bandaríkjanna eftir stutta heimsókn til Nuuk. Landry átti þar fundi með innlendum ráðamönnum og mætti á ráðstefnuna Future Greenland. Við heimkomuna sagði Landry meðal annars að velsæld Grænlands hvíldi á herðum Trump. Forsetinn hefur lengi lýst ásælni sinni í Grænland og sagt það mikilvægt fyrir varnir Bandaríkjanna. Sendinefnd frá Danmörku og Grænlandi fundaði um framtíðarsamskipti ríkjanna við bandaríska embættismenn í síðustu viku. Mikil spenna og óvissa hefur ríkt um stöðu Grænlands síðan Trump tók að sækjast eftir yfirráðum þar, sem hann segir í varnarskyni, ekki síst gagnvart Kína. Meginþættir viðræðnanna snerust að sögn DR um hvernig uppfylla mætti kröfur Bandaríkjanna um varnarsamstarf án þess að gefa eftir landsvæði og fullveldi og framtíðarhlutverk Atlantshafsbandalagsins við varnir Grænlands og Norðurslóða.

Go to News Site