Collector
Gonzalez krefst forsetakosninga svo fljótt sem verða má og lýsir stuðningi við Machado | Collector
Gonzalez krefst forsetakosninga svo fljótt sem verða má og lýsir stuðningi við Machado
Fréttastofa RÚV

Gonzalez krefst forsetakosninga svo fljótt sem verða má og lýsir stuðningi við Machado

Edmundo Gonzalez Urrutia, sem var forsetaframbjóðandi stjórnarandstöðunnar árið 2024, segir að efna beri til forsetakosninga í Venesúela svo fljótt sem verða má. Bandaríkin og fleiri ríki hafa lýst Gonzalez réttkjörinn forseta landsins. Gonzalez, sem dvelur í útlegð á Spáni, lýsti jafnframt yfir stuðningi við stjórnarandstöðuleiðtogann og Nóbelsverðlaunahafann Mariu Corinu Machado . Hún sjálf hefur krafist kosninga, kallað eftir viðræðum við núverandi stjórnvöld og sagst gefa kost á sér til embættisins. Gonzalez tekur undir orð Machado og segir markmiðið vera frelsi og lýðræði í Venesúela. Yfirlýsingar þeirra beggja gætu sett aukinn þrýsting á stjórnvöld og Bandaríkin að hlýða háværu ákalli um stjórnarskipti eftir að Bandaríkjaher steypti Nicolas Maduro forseta af stóli í janúar og varaforsetinn Delcy Rodriguez tók við, tímabundið og í skjóli Bandaríkjanna. Hún náði kjöri í sömu kosningum og Maduro, sem sætir ákæru í New York fyrir fíkniefnasölu. Stjórnarandstaðan og leiðtogar margra ríkja hafa sagt niðurstöðum kosninganna hafa verið hagrætt þeim í vil. Trump-stjórnin virðist ánægð með Rodriguez í brúnni meðan hún hlýðir kröfum hennar. Stjórnvöld í Venesúela líta á Machado sem flóttamann og saka hana um að hafa kallað eftir hernaðaríhlutun í landið.

Go to News Site