Fréttastofa RÚV
San Antonio Spurs mæta New York Knicks í úrslitum bandarísku NBA-körfuboltadeildarinnar eftir 111-103 sigur á Oklahoma City Thunder í vesturdeildinni í nótt. Shai Gilgeous-Alexander varnarmaður Oklahom í glímu við þá Victor Wembanyama og Julian Champagnie, liðsmenn Spurs.EPA / GERALD LEONG Þar með er ljóst að Oklahoma City ver ekki titilinn sem liðið tryggði sér í fyrra . Sjö leiki þurfti til að skera úr um úrslitin og Spurs leiddu nánast allan tímann í nótt. Franski varnarmaðurinn Victor Wembanyama skoraði 22 stig og átti sjö stoðsendingar og Julian Champagnie skoraði 20, þar á meðal sex þriggja stiga körfur. New York Knicks komst í úrslitin eftir að hafa burstað Cleveland Cavaliers 4 - 0 í einvíginu um að komast þangað. Fyrsti leikur í úrslitum NBA verður á miðvikudaginn.
Go to News Site