Fréttastofa RÚV
Vígahnöttur sprakk með mjög háværum hvelli á þriðja tímanum aðfaranótt laugardags að staðartíma í Bandaríkjunum, sem fór ekki fram hjá íbúum Massachusetts og New Hampshire í norðausturhluta landsins. Íbúar í ríkjunum tveimur segja sér hafa brugðið verulega enda var krafturinn svo mikill að hús nötruðu við sprenginguna. Afl sprengingarinnar var á borð við að 300 tonn af TNT hefðu leysts úr læðingi samtímis, að sögn Jennifer Dooren, fjölmiðlafulltrúa bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA. Hnötturinn var á 120 þúsund kílómetra hraða á klukkustund þegar hann tættist í sundur í um 64 kílómetra hæð. Lofsteinninn á sér náttúrulegan uppruna en var hvorki hluti af virkri lofsteinadrífu að sögn Dooreen né heldur gervihnöttur eða annað geimrusl að koma inn fyrir lofthjúp jarðar. Árið 2013 sprakk stór vígahnöttur í rúmlega 22 kílómetra hæð yfir rússnesku borginni Chelyabinsk . Sprengingin var margfalt öflugri en kjarnorkusprengjan í Híróshíma. Rúmlega 1.600 slösuðust, einkum af völdum glerbrota sem þeyttust úr gluggum húsa við höggbylgjuna sem fylgdi á um 518 ferkílómetra svæði. Það jafngildir tæplega tvöfaldri stærð Reykjavíkur.
Go to News Site