Collector
Nokkur hundruð andæfðu forsetaframboði Keiko Fujimori | Collector
Nokkur hundruð andæfðu forsetaframboði Keiko Fujimori
Fréttastofa RÚV

Nokkur hundruð andæfðu forsetaframboði Keiko Fujimori

Hundruð mótmæltu um helgina forsetaframboði hægrikonunnar Keiko Fujimori í perúsku höfuðborginni Líma og fleiri borgum. Rúm vika er í að íbúar Perú velji milli Fujimori og vinstrimannsins Pedro Sanchez í síðari umferð kosninganna. Mótmælendur báru borða og skilti með áletrunum á borð við „Út með Keiko“ og „Aldrei aftur Fujimori“. Hún er dóttir Albertos Fujimori sem var Perúforseti frá 1990 til 2000 og stjórnaði landinu með harðri hendi og mótmælendur tjáðu AFP-fréttaveitunni ótta sinn um að sagan endurtæki sig næði hún kjöri. Fujimori væri hættuleg og sigur hennar jafnaðist á við kosningasvik. Alberto Fujimori var loks dæmdur til 25 ára fangavistar fyrir glæpi gegn mannkyni tengdum herför hans gegn skæruliðahreyfingunum Tupac Amuro og Skínandi stíg. Alls gáfu 35 kost á sér í fyrri umferð forsetakosninganna 12. apríl, sem er metfjöldi. Snemma varð ljóst að Keiko Fujimori fengi 17,1% atkvæða en óratíma tók að skera úr um hvort Sanchez eða íhaldsmaðurinn Rafael Lopez Aliaga mættu henni í úrslitum, enda nánast hnífjafnir. Niðurstaðan varð sú að Sanchez fékk 12 af hundraði atkvæða. Búist er við að kosningabaráttan verði jafnhörð og árið 2021 þegar Fujimori tapaði fyrir vinstrimanninum Pedro Castillo. Honum var vikið úr embætti í desember 2022. Sanchez var viðskiptaráðherra í stjórn Castillos.

Go to News Site