Collector
Fannst fyndið að gera pólitískar ferskeytlur | Collector
Fannst fyndið að gera pólitískar ferskeytlur
Fréttastofa RÚV

Fannst fyndið að gera pólitískar ferskeytlur

„Svo ef það verður heimsendir þá er þetta bara fínt vopn,“ segir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir um nýjustu bók sína, FNÆS, sem er safn nærri 400 myndasagna efti hana frá síðustu fimm árum. FNÆS er stór og vegleg bók, 320 síður af fnæsi yfir öllu frá hversdeginum til heimsmálanna. Stundum er fnæst af gleði, stundum af reiði og stundum af uppgjöf. Myndasögurnar í bókinni spegla sameiginlega reynslu samfélags. Hún er oft flókin en getur einnig verið fyndin. Ekkert er Lóu Hlín óviðkomandi og hún fjallar um ófullkomleika manneskjunnar, uppeldi, heim á vonarvöl, hópefli, menningararfinn, rútínu, sérvisku og jólin. Lóa Hlín fnæsti með Guðrúnu Dís Emilsdóttur og Atla Fannari Bjarkasyni í Morgunútvarpinu á Rás 2. Í myndasögum sínum gerir Lóa Hlín gjarnan grín að Íslendingum enda er af nógu að taka. „Það fer svo mikill tími í að vera fastur í umferðinni. Þá hefur maður svo góðan tíma til að hugsa um samferðafólk sitt.“ „Ég geri svo oft myndasögur þannig ég gríp hluti úr umhverfinu eins og einhver ryksuga,“ bætir hún við. Hún gerði mikið af því að lesa myndasögur sem barn og saknar til að mynda heilsíðnanna í dagblöðunum. Þessar myndasögur hvöttu krakka líka til að lesa fjölmiðla. Hún telur að krakka lesi myndasögur af krafti í dag. „Það er alltaf verið að tala um að börn séu hætt að lesa en ef þú spyrð fólkið í Nexus þá segja þau nei, þau eru hérna á hverjum einasta degi, hjarðir af þeim.“ Hins vegar sé ekki nógu mikið þýtt af bókum fyrir börn og því lesi þau mikið á ensku. „Það lifir líka eiginlega enginn af því að vera barna- eða myndasöguhöfundur á Íslandi. Þú þarft að gera hundrað hluti líka en það er alveg áhugi.“ Samdi ferskeytlur um Albert Guðmundsson Í myndasögum Lóu Hlínar má finna húmor, kaldhæðni og jafnvel reiði. „Það er bara allur skalinn.“ „Svo er rosalega mikið af ferskeytlum því í fyrra fannst mér eitthvað sjúklega fyndið að fara að semja ferskeytlur.“ Hún setti sér það markmið að gera eina ferskeytlu á viku. „Ég var mjög mikið með eldra fólki þegar ég var barn og alltaf að semja ferskeytlur um Albert Guðmundsson.“ „Mér leið eins og ég væri mjög mikið á grensunni að gera pólitískar ferskeytlur og reyna að vera fyndin.“ Hún reyndi líka að plata systur sína með á hagyrðingakvöld en þær eru aldar upp í leikfélaginu Hugleik þar sem mikið var verið að leika sér með menningararfinn. „Við bara lærðum að gera ferskeytlur.“ „Bæði finnst mér þetta skemmtilegt og fallegt og hluti af því að alast upp hérna en líka ógeðslega fyndið. Hlutir verða oft svo glataðir þegar þeir ríma.“ Vildi bara hegða sér eins og lítið svín Árið 2021 gaf Lóa Hlín út sams konar bók sem heitir DÆS. „Þetta er allt sem ég hef gert síðan þá. Þetta er ekki greatest hits,“ segir hún um FNÆS. Útgefendur hennar hafi þó viljað sleppa nokkrum myndasögum sem þeim fannst ekki segja neitt og var þeim því hent út. Það má því segja að FNÆS fjalli um líf Íslendinga eftir heimsfaraldurinn. Framan á kápunni sé sjálfsmynd af Lóu Hlín sem er byggð á ljósmynd frá því hún var barn. „Það eru til nokkrar myndir af mér síðan ég var krakki þar sem ég var ein að vesenast í drullu eða grasi, ótrúlega hamingjusöm. Svo er ég alltaf reið á svipinn eins og einhver hafi verið að trufla mig þegar ég vildi bara hegða mér eins og lítið svín.“ Hægt er að geyma bókina á sófaborðinu og grípa niður hvar sem er og byrja að lesa. „Þess vegna er hún svona mikill hlunkur. Þú getur bæði lagað borðið þitt með henni ef það er valt eða bara flett einhvers staðar.“ „Mér leið eins og ég væri mjög mikið á grensunni að gera pólitískar ferskeytlur og reyna að vera fyndin,“ segir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir sem nýlega gaf út myndasögusafnritið FNÆS. Í því eru nær allar myndasögur sem hún hefur birt frá árinu 2021. Rætt var við Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur í Morgunútvarpinu á Rás 2. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Go to News Site