Fréttastofa RÚV
Flugfélagið Icelandair hefur aflýst sex flugferðum í dag vegna þess að ekki tókst að manna áhafnir. Ferðirnar eru til og frá London, Glasgow og Róm. Margir eru strandaglópar í þessum borgum því vélarnar voru fullbókaðar. Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir allt kapp lagt á að bóka nýjar ferðir fyrir fólkið. Mikið hefur borið á því að flugferðum Icelandair sé aflýst vegna áhafnaskorts að undanförnu en það er almennt nokkuð sjaldgæft. Í síðustu viku var tíu flugferðum aflýst. Engir kjarafundir á dagskrá Enn er langt í land í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna, sagði Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í vikunni. Hver er staðan núna? „ Það hefur ekki styst mikið,“ segir Ástráður. Fundað var í liðinni viku en engir fundir eru sem stendur á dagskrá. Ástráður segist hins vegar ræða við Icelandair og FÍA síðar í dag. „Við ákváðum aðeins að anda og átta okkur í rólegheitum, sofa á þessu.“
Go to News Site