Collector
„Staða ferðaþjónustunnar er góð í sumar“ segir hótelstjóri Hótels Rangár | Collector
„Staða ferðaþjónustunnar er góð í sumar“ segir hótelstjóri Hótels Rangár
Fréttastofa RÚV

„Staða ferðaþjónustunnar er góð í sumar“ segir hótelstjóri Hótels Rangár

Staða ferðaþjónustunnar er góð í sumar segir Friðrik Pálsson á Hótel Rangá. Hann setur hins vegar spurningarmerki við haustið. Friðrik Pálsson er eigandi og hótelstjóri Hótels Rangár í Rangárþingi eystra. Á hótelinu eru um 50 herbergi og þar af nokkrar svítur. Friðrik segir að sumarið fari vel af stað og að staða ferðaþjónustunnar sé góð að hans mati, ekki þurfi yfir neinu að kvarta. „Það sem snýr að okkur hér og ég heyri í kringum mig þá er það býsna gott. Ég held að það sé dálítill munur eftir fjárráðum fólks hvernig það er að ferðast núna, mér heyrist það, til dæmis að Bandaríkjamenn, þeir tala um að það séu bara þeir, sem séu bara vissir um að þeir eigi fyrir kreditkortinu þegar þeir koma heim, sem að leggi í að ferðast. En í það heila tekið þá lítur sumarið vel út en það eru örlítið meiri spurningar með haustið,” segir Friðrik. Þannig að þú ert bara bjartsýnn á sumarið? „Já, ég er nú yfirleitt frekar bjartsýnn". Friðrik segir að Bandaríkjamenn séu alltaf stærstir þegar ferðamenn eru annars vegar og svo komi Bretar þar á eftir og að það sé alltaf töluvert af ferðamönnum líka frá Brasilíu. „En bara alla jafna þá er fólk á ferðinni allan daginn. Það fer út hérna snemma á morgnana og kemur aftur rétt fyrir kvöldmat og allir yfirleitt bara sælir,” segir Friðrik. Friðrik verður áttræður á næsta ári. Ætlar hann að halda áfram og áfram í ferðaþjónustu eða hvað? „Eitthvað verður maður að hafa að gera. Ég hef óskaplega gaman af þessu, þetta er svona eiginlega eftirlaunahobbýið mitt og ég nýt þess,” segir Friðrik og skellihlær.

Go to News Site