Collector
Hefði haldið að það væru brýnni verkefni í borginni en fánareglur | Collector
Hefði haldið að það væru brýnni verkefni í borginni en fánareglur
Fréttastofa RÚV

Hefði haldið að það væru brýnni verkefni í borginni en fánareglur

Borgarstjórn kemur saman á fundi á þriðjudaginn og tekur fyrir tillögur nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks. Fulltrúar meirihlutans leggja til að reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús borgarinnar verði felldar niður. „Það er auðvitað leiðinlegt að þarna á augljóslega að taka niður fána sem hafa verið dregnir að húni til að sýna samstöðu,“ segir Sanna Magdalena Mörtudóttir um áformin. Hún segir mikilvægt að reglur og verklag um flöggun fána séu skýr. Ekki sé skýrt í tillögu nýs meirihluta hvaða viðmið eigi að styðjast við þegar fánum sé flaggað við stjórnsýsluhús borgarinnar. Í reglum um flöggun fána, sem voru samþykktar undir stjórn fyrri meirihluta í apríl, hafi verklag verið skýrt og eytt öllum vafa um hvenær ætti að flagga íslenska fánanum, fána Reykjavíkurborgar auk annarra fána. „Við breyttum þeim einmitt í forsætisnefnd þannig að það væri mjög skýrt að ef það væri ekki settur tímarammi á það hversu lengi fánar ættu að vera uppi, til dæmis vegna samstöðu, þá væri hægt að miða við þriggja mánaða tímabil og þá annaðhvort hægt að taka ákvörðun að nýju eða taka þá niður.“ Minna hátíðlegt að flagga íslenska fánanum í hversdeginum Þá spyr hún einnig hvort það sé vilji fólks að flagga íslenska fánanum alla daga í stað þess að flagga honum á fánadögum líkt og núgildandi reglur kveði á um. Það kunni að verða minna hátíðlegt og sérstakt að flagga íslenska fánanum ef hann blakti við hún alla daga. Sanna segir sérstakt að niðurfelling fánareglna sé eitt af fyrstu málum á dagskrá hjá nýjum meirihluta. Sjálf hefði hún haldið að það væru meira aðkallandi mál í borginni á borð við húsnæðismál og málefni barna.“

Go to News Site