Collector
Um 120 skjálftar í hrinu við Hellisheiði | Collector
Um 120 skjálftar í hrinu við Hellisheiði
Fréttastofa RÚV

Um 120 skjálftar í hrinu við Hellisheiði

Um 120 jarðskjálftar hafa mælst í hrinu sem hófst við Hellisheiði snemma í morgun. Fyrstu skjálftar mældust rétt fyrir klukkan 7:00 um þremur kílómetrum vestur af Húsmúla við Hellisheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Stærsti skjálftinn í hrinunni mældist 3,3 að stærð klukkan 17:15. Sjö skjálftar mældust yfir 2 að stærð. Veðurstofan hefur fengið ábendingar um að skjálftar hafi fundist í Hveragerði. Líklegt þykir að þeir stærstu finnist víðar og sá stærsti fannst á höfuðborgarsvæðinu. Skjálftar og skjálftahrinur eru nokkuð algengar á þessu svæði og varð álíka hrina síðast í júní 2024.

Go to News Site