Fréttastofa RÚV
Þrír leikir í Bestu deild karla í fótbolta kláruðust rétt í þessu. KR, Stjarnan og ÍBV unnu sigra. ÍBV vann sinn fyrsta sigur í Bestu deild karla í fótbolta er liðið vann 6-1 stórsigur gegn Keflavík í Vestmannaeyjum. ÍBV og FH höfðu hvorugt náð að vinna leik hingað til en Eyjamenn skilja nú FH-inga eftir eina í neðsta sæti. ÍBV er með fimm stig í 11. sæti. FH er með tvö stig í 12. sæti. Keflavík er í 7. sæti með 11 stig. Markaskorarar: Róbert Elís Hlynsson '14 1-0 - ÍBV Halldór Jón Sigurður Þórðarson '39 2-0 - ÍBV Alex Freyr Hilmarsson '49 3-0 - ÍBV Milan Tomic '52 4-0 - ÍBV 4-1 Muhamed Alghoul '61 - Keflavík Róbert Elís Hlynsson '67 5-1 - ÍBV Omar Sowe '85 6-1 - ÍBV Upplýsingar um markaskorara fengnar frá fotbolti.net KR tapaði nærri því niður unnum leik Í Vesturbænum vann KR 5-3 sigur gegn KA í skringilegum leik. KR komst í 2-0 snemma leiks og leiddi 3-0 í hálfleik. KA menn minnkuðu muninn eftir að aukaspyrna var dæmd á Finn Tómas er Oliver Heiðarsson var að sleppa í gegn. Vildu KA-menn fá rautt spjald á Finn en hann fékk einungis gult. KR komst í 4-1 þegar fimmtán mínútur voru eftir en KA menn lögðu ekki árar í bát. Þeir minnkuðu muninn í 4-3 og virtust líklegir til að jafna. Að lokum bættu KR-ingar við fimmta markinu í uppbótartíma. KR jafnar Víkinga að stigum í toppsætinu með sigrinum. Bæði lið eru með 25 stig en Víkingar með betri markatölu. Þeir mæta Val í leik sem hefst klukkan 19:15. KA er í 8. sæti með 10 stig. Markaskorarar: Aron Sigurðarson '5 1-0 - KR Eiður Gauti Sæbjörnsson '17 2-0 - KR Luke Rae '45 3-0 - KR 3-1 Jakob Snær Árnason '63- KA Aron Sigurðarson '74 4-1 - KR 4-2 Birgir Baldvinsson '82 - KA 4-3 Markús Máni Pétursson '83 - KA Galdur Guðmundsson '91 5-3 - KR Upplýsingar um markaskorara fengnar frá fotbolti.net Stjarnan aftur á beinu brautina Stjarnan hafði ekki unnið í fimm leiki en bar sigur úr býtum gegn Þórsurum í kvöld, 1-3. Þór komst yfir 1-0 og leiddi í hálfleik. Stjarnan sneri hins vegar taflinu sér í vil og leiddi 1-2 þegar Þórsarar fengu rautt spjald. Að lokum vannst öruggur sigur. Stjarnan er sem fyrr í 9. sæti með 10 stig. Þór er í 10. sæti með sex stig. Atvik leiksins Ágúst Eðvald Hlynsson '8 1-0 - Þór 1-1 Daníel Finns Matthíasson '51 - Stjarnan 1-2 Emil Atlason '63 - Stjarnan Christian Greko Jakobsen '78 - Þór 1-3 Haukur Örn Brink '91 - Stjarnan Upplýsingar markaskorara fengnar frá fotbolti.net
Go to News Site