Collector
Fyrrverandi seðlabankastjóri sendir Bandaríkjaforseta pillu | Collector
Fyrrverandi seðlabankastjóri sendir Bandaríkjaforseta pillu
Fréttastofa RÚV

Fyrrverandi seðlabankastjóri sendir Bandaríkjaforseta pillu

Jerome Powell, fyrrverandi bankastjóri bandaríska seðlabankans, impraði á mikilvægi þess að stjórnvöld virði sjálfstæði bankans til þess að hann haldi trúverðugleika sínum. Það gerði Powell í ræðu sem hann hélt þegar hann veitti hugrekkisviðurkenningu John F. Kennedy-stofnunarinnar viðtöku. Hann hlaut verðlaunin fyrir að hafa í störfum sínum staðið vörð um sjálfstæði bankans. „Líkt og margar aðrar stofnanir þá hefur seðlabankinn þurft að gangast undir álagspróf,“ sagði Powell. „Ef einhver ríkisstjórn finnur leið til þess að koma stjórnendum bankans frá störfum vegna ágreinings um stefnumál þá eiga ríkisstjórnir sem á eftir koma eftir að gera slíkt hið sama,“ bætti Powell við í lítt dulbúinni gagnrýni sinni í garð Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og tilraunum forsetans til að reka Lisu Cook úr embætti sínu í stjórn bankans. Ákvað að halda sætinu í stjórn bankans Trump hefur líka viljað losna við Powell úr embætti á síðustu misserum en þeir tveir hafa lengi eldað grátt silfur saman. Forsetinn hefur ítrekað gagnrýnt Powell og sagt hann ekki hafa haft nógu snör handtök við lækkun stýrivaxta. Dómsmálaráðuneytið hóf sakamálarannsókn á Powell í tengslum við endurbætur á húsnæði bankans. Rannsóknin var felld niður í apríl . „Trúverðugleika okkar hefur verið viðhaldið í marga áratugi og okkur ber skylda til að standa vörð um þá ómetanlegu eign fyrir samborgara okkar og framtíðarkynslóðir,“ sagði Powell. Skipunartíma Powells lauk í maí og þá tók Kevin Warsh við starfinu . Powell ákvað þó að halda sæti sínu í stjórn bankans, þar á hann víst sæti til 2028. Sú ákvörðun þótti heldur óhefðbundin af hálfu bankastjóra á útleið. Powell sagði hana tekna vegna þess að sjálfstæði bankans hefði verið ógnað en hann hét því að láta lítið fyrir sér fara, eins og hann orðaði það. Með því að sitja áfram í stjórninni kemur Powell í veg fyrir að stjórn Trumps útnefni nýjan stjórnarmann í hans stað.

Go to News Site