Fréttastofa RÚV
Tveir erlendir leiðsögumenn voru handteknir um helgina og vísað brott frá Færeyjum ásamt því að vera gert að greiða sekt fyrir að starfa þar án tilskilinna leyfa. Frá Sandey í Færeyjum. Ferðamennska hefur færst talsvert í vöxt á síðustu árum.Vefur / Kringvarpið Mönnunum verður ekki leyft að koma aftur til Færeyja um ótiltekinn tíma. Hið sama gerðist fyrir tveimur vikum, samkvæmt umfjöllun færeyskra fréttamiðla. Lögreglan í Þórshöfn hafi í nægu að snúast þar sem henni berist á annan tug tilkynninga daglega frá áhyggjufullum almenningi vegna starfa erlendra leiðsögumanna. Vefritið Portal segir lögregluna hafa í liðinni viku rannsakað minnst þrjú meint brot starfsmanna ferðaskrifstofa.
Go to News Site