Collector
Hæglætisveður í kraftlítilli lægð | Collector
Hæglætisveður í kraftlítilli lægð
Fréttastofa RÚV

Hæglætisveður í kraftlítilli lægð

Hæglætisveður verður á landinu í dag og næstu daga. Þungbúið og svalt austan til í dag og dálítil rigning, en úrkomulítið í öðrum landshlutum þar sem hiti er hærri og gæti náð allt að 16 stigum. Víkjum að hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands: Kraftlítið lægðasvæði suður í hafi stjórnar veðrinu hjá okkur í dag, áttin verður því austlæg eða breytileg og vindur yfirleitt hægur. Austanáttinni fylgir þungbúið og svalt veður austantil á landinu, þokusúld eða dálítil rigning á þeim slóðum í dag og hiti 3 til 8 stig. Í öðrum landshlutum verður úrkomulítið og hiti á bilinu 7 til 16 stig, en sunnanlands gætu stöku skúrir látið á sér kræla. Áfram hægur vindur á morgun og súld eða þokuloft með köflum á Norður- og Austurlandi. Þurrt að mestu annars staðar en þó eru líkur á stöku síðdegisskúrum, einkum inn til landsins. Hiti 7 til 16 stig, mildast vestanlands. Áfram hæglætis veður á miðvikudag, en síðdegis gæti gert sæmilegar skúradembur á vesturhluta landsins.

Go to News Site