Collector
Tveir særðir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju | Collector
Tveir særðir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju
Fréttastofa RÚV

Tveir særðir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju

Tveir særðust þegar mikil sprenging varð í flugeldaverksmiðju á Möltu í morgun. Mikinn reyk lagði frá verksmiðjunni, brak skaust í allar áttir, byggingar titruðu og rúður sprungu. Fyrsta sprengingin varð klukkan 6:35 að staðartíma og skömmu síðar varð önnur stærri. Nokkrar minni sprengingar hafa fylgt í kjölfarið. Enginn var í verksmiðjunni þegar sprengingin varð. Mennirnir sem slösuðust voru við vinnu á ökrum nærri verksmiðjunni. Í frétt Times of Malta má sjá myndir og myndskeið af sprengingunni. Kraftmikil sprenging varð í flugeldaverksmiðju á Möltu í morgun. Tveir særðust og fjöldi bygginga varð fyrir skemmdum.

Go to News Site