Collector
Íranar draga sig úr viðræðum vegna árása Ísraels | Collector
Íranar draga sig úr viðræðum vegna árása Ísraels
Fréttastofa RÚV

Íranar draga sig úr viðræðum vegna árása Ísraels

Íranski miðillinn Tasnim, sem er tengdur stjórnvöldum í Íran, greinir frá því að Íranar ætli ekki að halda áfram viðræðum við Bandaríkin um frið fyrr en Ísraelsher hættir árásum í Líbanon og á Gaza. Ísraelsk stjörnvöld taka sífellt meira landsvæði í Líbanon og forsætisráðherra fyrirskipaði árásir á úthverfi höfuðborgarinnar Beirút í morgun. Leiðtogar í Evrópu fordæma framferði ísraelskra stjórnvalda og Frakkar krefjast skyndifundar í öryggisráðinu. Þrátt fyrir að vopnahlé sé enn í gildi heldur Ísraelsher áfram að færa sinn innar í landið og skipa íbúum borga og bæja í suður-Líbanon á flótta. Ísraelsher heldur líka áfram árásum að skipan stjórnvalda, nú síðast í morgun fyrirskipaði forsætisráðherran Benjamín Netanjahú árásir á úthverfi í Beirút. Emmanuel Macron Frakklandsforseti segir ekkert réttlæta þá miklu stigmögnun sem orðið hefur í Suður-Líbanon og Johann Wadepuhl, utanríkiráðherra Þýskalands, tekur í sama streng. Breski utanríkisráðherrann Yvette Cooper segir að Ísraelar verði að hætta drápum á almennum borgurum og eyðileggingu innviða sem dragi verulega úr möguleikum á friðarsamkomulagi. Hezbollah verði að láta af árásum á Ísrael og afvopnast auk þess sem stríðandi fylkingum beri að virða vopnahléð og setjast að samningaborði. Frakkar kröfðust þess að haldinn yrði skyndifundur í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna eftir að ísraelskar hersveitir fóru yfir hið hernaðarlega mikilvæga Litanifljót og náðu yfirráðum yfir Beaufort-kastala eftir harða bardaga við liðsmenn Hezbollah. Fundurinn verður haldin í New York í kvöld.

Go to News Site