Collector
Ágúst Brynjarsson er með Hjartað á milljón | Collector
Ágúst Brynjarsson er með Hjartað á milljón
Fréttastofa RÚV

Ágúst Brynjarsson er með Hjartað á milljón

Ágúst Þór Brynjarsson er 26 ára söngvari, lagahöfundur og tónlistarmaður frá Húsavík. Hann hefur á síðustu tveimur árum stigið inn í sviðsljósið sem trúbador, meðlimur í Stuðlabandinu, keppandi í Söngvakeppninni og brekkusöngvari á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Fyrsta platan hans, sem kom út í lok apríl, heitir Hjartað á milljón og inniheldur ellefu lög um daglegt líf, ást, feðgasamband og Húsavík. Ágúst og Hákon Guðna, tónelskur sjómaður sem kemur heim á milli túra og stekkur inn í hljóðverið með Ágústi, sömdu öll lögin. Platan er persónuleg á þá vísu að það er erfitt að finna lag sem fjallar um eitthvað annað en það sem er að gerast hjá Ágústi núna. Ágúst Brynjarsson mætti í hljóðstofu til Atla Más Steinarssonar og ræddi plötu vikunnar – Hjartað á milljón – og ferilinn fram að þessu.

Go to News Site