Fréttastofa RÚV
Þórir Hergeirsson hefur verið ráðinn sem sérfræðingur og gestakennari við íþrótta- og heilsufræðibraut Háskóla Íslands. Þetta kemur fram á heimasíðu háskólans . Hann er einn sigursælasti handboltaþjálfari sögunnar. Þórir stýrði norska kvennalandsliðinu frá 2009-2024 og á þeim tíma vann liðið til 17 verðlauna á stórmótum. Heimsmeistaragullin urðu þrjú, Evrópumótið vann hann sex sinnum og Ólympíuleikana tvisvar. Þar að auki vann liðið samtals þrenn silfurverðlaun og þrenn bronsverðlaun. Þrisvar hefur Þórir verið útnefndur þjálfari ársins í Noregi og þrisvar af samtökum íþróttafréttamanna á Íslandi. Í tilkynningu HÍ segir að Þórir muni koma að kennslu bæði í grunn- og framhaldsnámi brautarinnar og auk þess halda opna fyrirlestra fyrir þjálfara og annað áhugafólk um afreksþjálfun.
Go to News Site