Collector
Flokkur fólksins mælist utan þings | Collector
Flokkur fólksins mælist utan þings
Fréttastofa RÚV

Flokkur fólksins mælist utan þings

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 23,5% fylgi og bætir við sig tveimur prósentustigum milli mánaða. Flokkurinn hefur aukið fylgi sitt um fjögur prósentustig frá kosningunum fyrir einu og hálfu ári. Fylgið hefur ekki verið meira í þjóðarpúlsi frá því vorið 2023. Flokkur fólksins tapar rúmu prósentustigi á milli mánaða og mælist aðeins með 4,0% fylgi. Yrðu þetta úrslit kosninga fengi flokkurinn engan þingmann kjörinn. Fylgi Miðflokksins minnkar Samfylkingin mælist sem fyrr stærsti flokkurinn. Fylgið er 28,4% og stendur í stað milli mánaða. Fylgi Miðflokksins dregst saman. Flokkurinn mælist með 17,6%, sem er rúmu prósentustigi minna en í síðasta mánuði. Fylgi flokksins hefur dregist nokkuð saman frá því í lok síðasta árs þegar það mældist yfir 20 prósentum. Viðreisn mælist með 10,6% fylgi sem er það sama og í síðasta mánuði. Framsóknarflokkurinn bætir við sig. Alls segjast 6,7% kjósenda styðja flokkinn en voru 5,4% í síðasta mánuði. Aðeins fimm eftir á þingi Á móti dregur úr stuðningi við Vinstri græna. Flokkurinn mælist inni á þingi í síðustu könnun Gallups með 5,1% en nú er fylgið 4,3%. Sósíalistaflokkurinn mælist með um 3% en Píratar 2%. Enginn þessara flokka næði manni á þing. Yrðu þetta niðurstöður kosninga væru því aðeins fimm flokkar eftir á þingi: Samfylking, Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur, Viðreisn og Framsóknarflokkur. Alls segjast 49% aðspurðra styðja ríkisstjórnina, sem er sama hlutfall og í síðasta mánuði. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna dregst þó saman og mælist 43%. Þjóðarpúls maí 2026 Könnunin var gerð dagana 30. apríl til 31. maí 2026. Heildarúrtak var 12.979 manns og þátttökuhlutfall 40,8%. Vikmörk á fylgi flokka eru 0,4 til 1,3 prósentustig. Fleiri kannanir og greiningar má finna á ruv.is/kosningar .

Go to News Site