Collector
Niðurstöður Matsferils liggja fyrir | Collector
Niðurstöður Matsferils liggja fyrir
Fréttastofa RÚV

Niðurstöður Matsferils liggja fyrir

Foreldrar geta nú séð niðurstöður barna sinna úr stöðu- og framvinduprófum Matsferils í stærðfræði og lesskilningi inni á Mínum síðum á island.is. „Þessar niðurstöður eiga að segja heilmikið til um stöðu barns í þessum fögum sem um er að ræða,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Hún segir að niðurstöðurnar sýni stöðu barna svo hægt verði að koma betur til móts við þau. Þá verði þær notaðar til að opna á samtal og samvinnu milli skóla og heimilis. Prófin voru lögð fyrir 57 þúsund nemendur í fjórða til tíunda bekk í mars. Sjá stöðuna og síðar þróunina Þórdís Jóna útskýrir að foreldrar geti séð hlutfall réttra svara barna sinna. „Einnig brjótum við prófin niður í fjóra þætti þar sem hægt er að sjá á hvaða bili barnið er og hvað það í raun þýðir.“ Notagildið verði ekki síst þegar próf næstu ára liggja fyrir. „Þá er hægt að sjá hver framvindan er. Það er kannski þá sem við virkilega förum að sjá notagildið í þessu, því nú er einhver staða og þá er hægt að bregðast einhvern veginn við. Eftir ár er hægt að sjá hvernig það er að skila sér.“ Niðurstöður opinberar á næsta ári Þórdís Jóna segir að kennarar hafi fagnað prófinu. „Það hefur verið mikil þátttaka og traust kennara á því sem við erum að gera. Við trúum því að með þessu getum við átt mjög mikilvægt samtal.“ Niðurstöður Námsferilsins verða ekki birtar opinberlega í ár en Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur tilkynnt að frá og með næsta vori verði þær birtar fyrir fjórða, sjötta og níunda bekk eftir bæði skólum og árgöngum.

Go to News Site