Collector
Telja mikla óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits | Collector
Telja mikla óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits
Fréttastofa RÚV

Telja mikla óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits

Starfsmenn heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga eru uggandi yfir fyrirhuguðum skipulagsbreytingum sem taka eiga gildi um áramótin. Verði lagabreytingar samþykktar færast verkefni þeirra til ríkisstofnana. Margir af starfsmönnum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga funduðu í dag með Félagi íslenskra náttúrufræðinga en mikil óvissa er um framtíð heilbrigðiseftirlits, störf starfsfólks og kjör þess. Skrifstofum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga var lokað í dag vegna fundarins á milli tíu og eitt. Vel á sjöunda tug starfsmanna sóttu fundinn. Þorkell Heiðarsson, formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN), segir að mikil óvissa hafi verið um breytingarnar síðan þær voru tilkynntar. „Það virðist vera sem öllu starfsfólki verði sagt upp hjá núverandi vinnuveitendum, sem eru sveitarfélög eða sjálfseignarstofnanir í þeirra eigu um land allt, og óvíst í raun hversu margir fái vinnu og með hvaða hætti og þetta er auðvitað búið að valda miklum titringi hjá starfsfólki, eðlilega, enda er þarna fólk sem er búið að vinna áratugum saman við heilbrigðiseftirlit víða á landinu,“ segir hann. Krefjast þess að áunnin réttindi verði virt Þorkell segir að með flutningi frá sveitarstjórnarstiginu yfir til ríkisins eigi ekki að virða áunnin eða uppsöfnuð réttindi starfsmanna. „Það finnst okkur líka brjóta á ákveðnu jafnræði, því í sömu lögum er verið að flytja starfsfólk á milli ríkisstofnana og það heldur öllum sínum réttindum,“ segir Þorkell sem telur að margt bendi einnig til þess að kjör verði rýrari fyrir starfsfólk heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga hjá ríkisstofnuninni. „Við teldum miklu eðlilegra að bjóða fólki vinnu hjá nýrri stofnun hjá ríkinu heldur en að segja því upp og ætlast til þess að það sæki um vinnu á ríkisstofnunun, annarri sem hefur ekki verið stofnuð,“ segir Þorkell sem vísar þar til Stofnunar atvinnuveganna sem sameina mun meðal annars Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs sem lagðar verða niður. Í ályktun sem birt var að loknum fundi krefst FÍN þess að áður en ákvörðun um flutning verkefna tekur gildi liggi fyrir skýr og bindandi niðurstaða um að starfsfólk haldi áunnum réttindum sínum óskertum. Þá krefst félagið þess að upplýsingar um fjölda og staðsetningu þeirra starfa sem flytja á frá sveitarfélögum til ríkis verði lagðar fram tafarlaust og fólki sé þannig gert mögulegt að leita annarra starfa með eðlilegum fyrirvara. Hætta á að sérfræðiþekking glatist Starfsfólk heilbrigðiseftirlits hefur einnig áhyggjur af framkvæmd eftirlits gangi breytingarnar eftir. „Við höfum miklar áhyggjur af því að það sé verið að leggja niður heilbrigðisfulltrúa sem er lögverndað starfsheiti og réttindi sem fylgja, sem byggist á faglegri þekkingu og við höfum áhyggjur af því að eftirlitið verði ekki eins faglegt þegar horft er fram hjá þessu réttindanámi,“ segir Anna Jóhannesdóttir, varaformaður Félags heilbrigðis- og umhverfisfulltrúa. „Við höfum líka áhyggjur af sérfræðiþekkingunni sem hefur byggst upp úti á landi hjá heilbrigðisfulltrúum þar. Staðbundin þekking gæti horfið,“ segir Anna sem tekur fram að margir heilbrigðisfulltrúar sinni bæði matvælaeftirliti og umhverfiseftirliti. „Þetta fólk getur augljóslega ekki skipt sér í tvennt þannig að það þyrfti að velja annan hvorn starfsstaðinn, sem gæti verið ómögulegt,“ segir hún. Ætlað að bregðast við athugasemdum ESA Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra tilkynntu breytingarnar á síðasta ári. Jóhann Páll sagði þá að breytingarnar yrðu ekki óumdeildar. Helsta ástæðan væri sú að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefði bent á að fyrirkomulag matvælaeftirlits á Íslandi stæðist ekki kröfur EES-samningsins og verið væri að bregðast við því með breytingunum. Mögulegt að rof verði á þjónustu Samtök heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi (SHÍ) sendu einnig frá sér fréttatilkynningu að fundi loknum í dag. Þar er varað við því að ekki hafi verið unnið úr þeim fjölmörgu athugasemdum sem fram hafa komið í samráðsferli um frumvörpin tvö. Samtökin vara við hættu á þjónusturofi, auknu flækjustigi, óljósri ábyrgð, lengri boðleiðum og auknum kostnaði. Í tilkynningunni segir að SHÍ ásamt fjölmörgum umsagnaraðilum hafi bent á að fyrirliggjandi frumvörp séu haldin verulegum annmörkum. Búið sé að benda á aðrar og vænlegri leiðir til að ná þeim markmiðum sem stjórnvöld vilji stefna að. Lagt hafi verið til að Frumvörpin í núverandi mynd feli í sér róttækar og flóknar kerfisbreytingar þar sem heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga sé lagt niður í núverandi mynd. „Slíkri breytingu fylgir mikil áhætta, ekki síst þegar enn liggja ekki fyrir fullnægjandi svör um innleiðingu, kostnað, mannafla, upplýsingakerfi, verkaskiptingu, fjármögnun verkefna sem eftir verða hjá sveitarfélögum eða það hvernig tryggja eigi samfellda þjónustu um allt land frá fyrsta degi,“ segir í tilkynningu SHÍ.

Go to News Site